Lífið

Synti frá Eyjum í land til styrktar börnum á á­taka­svæðum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Það tók Sigurgeir rúma sjö tíma að synda frá Vestmannaeyjum að Landeyjarsöndum.
Það tók Sigurgeir rúma sjö tíma að synda frá Vestmannaeyjum að Landeyjarsöndum. aðsend

Sigurgeir Svanbergsson kom í land í gærkvöldi eftir sjósund frá Vestmannaeyjum til Landeyjasanda. Synti Sigurgeir til styrktar börnum sem búa á átakasvæðum. 

Hann hóf sundið frá Eiðinu í Vestmannaeyjum í gær, föstudag klukkan þrjú, og var kominn að Landeyjarsöndum í gærkvöldi fyrir miðnætti. Sigurgeir varð þar með sjötti einstaklingurinn til þess að synda þessa leið svo vitað sé. Hann er ánægður með sundið sem hann segir samt sem áður hafa verið ansi strembið á köflum.

„Þetta var bara rosalega skemmtilegt og auðvitað bara mjög erfitt, ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja,“ segir Sigurgeir í samtali við Vísi. 

Veðrið var jafnframt hið bærilegasta. „ Það var hellidemba fyrst en svo skánaði veðrið eftir því sem leið á sundið, straumurinn var alltaf góður nema í lokin þegar brimið kastaði mér á ströndina.“

Kann hann Vestmannaeyjabæ bestu þakkir enda hafi bærinn veitt ómetanlega aðstoð við skipulagningu sundsins. 

Sóley Gísladóttir, konan Sigurgeirs, var á meðal þeirra sem fylgdu Sigurgeiri á kajak en Sóleyju segir Sigurgeir hafa hvatt sig áfram þegar hann hafi farið að pirra sig á meintum hægagangi. 

„Ég var farinn að pirra mig á því hvað þetta gengi hægt, mér leið bara eins og ég væri stopp og klettarnir virtust aldrei ætla að færast nær,“ sagði Sigurgeir.

Sigurgeir synti til styrktar börnum á átakasvæðum en hugmyndin að sundinu kviknaði vegna stríðsins í Úkraínu. Söfnunin hefur jafnframt gengið mjög vel og má enn styrkja Barnaheill hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.