Erlent

Kanada skili rússneskri túrbínu til Þýskalands

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Rússneskri túrbínu sem gekkst undir viðgerðir í Kanada skilað til Þýskalands. 
Rússneskri túrbínu sem gekkst undir viðgerðir í Kanada skilað til Þýskalands.  EPA-EFE/ANATOLY MALTSEV

Volodymyr Zelenskiy, forseti Úkraínu hefur sagt upp sendiherrum landsins í Þýskalandi, Indlandi, Tékklandi, Noregi og Ungverjalandi í skugga deila við Þýskaland.

Samband Úkraínu og Þýskalands hefur verið viðkvæmt vegna þess hve mikið Þýskaland reiðir sig á orku frá Rússlandi Löndin hafa í þessum efnum deilt um rússneska túrbínu sem hefur gengist undir viðgerðir í Kanada. Túrbínan var í eigu Gazprom.

Samkvæmt Guardian ákváðu kanadísk yfirvöld nú fyrr í kvöld að skila túrbínunni til Þýskalands en túrbínan flýtir fyrir streymi á rússnesku gasi í gegnum Nord Stream 1 leiðsluna.  

Yfirvöld í Úkraínu segja að skilin á túrbínunni muni gera lítið úr refsiaðgerðum gagnvart Rússlandi en Þýskaland stríðir við mikinn skort á gasi um þessar mundir. Kanadísk yfirvöld segja að með því að skila túrbínunni styrki þau aðgengi Evrópu að olíu og gasi. Umfjöllun Guardian um málið má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×