Innlent

Einvígi aldarinnar 50 ára – Afmælinu fagnað í Vík í Mýrdal

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Kötlusetur fagnar þessum 50 ára merka viðburði með skáksýningu og hraðskákmóti á morgun, laugardaginn 9. júlí í Vík í Mýrdal.
Kötlusetur fagnar þessum 50 ára merka viðburði með skáksýningu og hraðskákmóti á morgun, laugardaginn 9. júlí í Vík í Mýrdal. Aðsend

Kötlusetur í Vík í Mýrdal mun fagna því á morgun, 9. júlí að 50 ár eru liðin frá einvígi aldarinnar í skák með skáksýningu og hraðskákmóti í setrinu.

Eins og allir ættu að vita þá tókust á fulltrúar risaveldanna á tímum kalda stríðsins, Bandaríkjamaðurinn Bobby Fischer og Sovéski heimsmeistarinn Boris Spassky á skákborðinu. Skákmennirnir háðu einstaka orrustu á Íslandi, sem um leið varð einn af hápunktum kalda stríðsins. Rússar höfðu haldið heimsmeistaratitlinum í skák samfleytt í 24 ár og varð Bobby Fischer fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að vinna heimsmeistaratitilinn í skák frá upphafi keppninnar 1866.

Það mun allt snúast meira og minna um skák í Vík í Mýrdal laugardaginn 9. júlí.Aðsend

Albert Cañagueral var ungur námsmaður að taka sín fyrstu skref í blaðamennsku þegar einvígið fór fram. Ævintýrin höfðu dregið hann alla leið á Hnífsdal að vinna í fiski og þar var hann þegar spænskir fjölmiðlar báðu hann um að vera þeirra augu og eyru á staðnum. Albert gerði það og meira til, og nú 50 árum síðar rifjar hann upp í sýningunni í Kötlusetri einvígið, en ekki síst upplifunina af því að vera viðstaddur þennan merka viðburð.

Sýningin um Einvígi aldarinnar verður opin í Kötlusetrinu fram á haust fyrir alla áhugasama.Aðsend

Við opnunina munu Guðmundur G. Þórarinsson, þáverandi formaður Skáksambands Íslands og framkvæmdarstjóri einvígisins, ávarpa gesti og Friðrik Ólafsson, fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák og eini íslenski skákmeistarinn sem hefur lagt að velli Bobby Fisher mun segja nokkur orð um upphaf skáklistarinnar. Ljúf tónlist verður í boði hæfileikaríkra tónlistarmanna á svæðinu og boðið verður upp á léttar veitingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×