Erlent

Sex látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á Slóvíansk

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Slökkviliðsmenn slökkva eld í Lysytsjansk eftir árásir Rússa á borgina í morgun. Rússar eru nú líka byrjaðir að skjóta eldflaugum á Slóvíansk sem er stutt frá Lysytsjansk.
Slökkviliðsmenn slökkva eld í Lysytsjansk eftir árásir Rússa á borgina í morgun. Rússar eru nú líka byrjaðir að skjóta eldflaugum á Slóvíansk sem er stutt frá Lysytsjansk. AP/Luhansk region military administration

Að minnsta kosti sex eru látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Árásin er sú stærsta sem borgin hefur þurft að þola til þessa segir bæjarstjóri borgarinnar.

Að sögn embættismanna á staðnum eru að minnsta kosti sex látnir eftir árás Rússa á borgina Slóvíansk í dag. Þeirra á meðal er eitt barn. 

Tetiana Ihnatsjenkó, talskona stjórnsýslu Donetsk-héraðs, segir fimmtán hafa særst í árásinni.

Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk, sagði á Telegram að árásin væri sú versta sem borgin hefði þurft að þola nýlega og það hafi kviknað næstum fimmtán eldar í kjölfar hennar.

„Fólk getur skráð sig á lista, farið með rútu og komist til Pokrovsk, þaðan fer lest sem kemur fólki til Dnipro eða enn lengra til Lviv,“ sagði Ignatsjenkó um möguleika fólks til að komast burt.

Rússar skutu einnig þremur eldflaugum á borgina Kramatorsk með þeim afleiðingum að hótel eyðilagðist og vegur í íbúðahverfi fór í sundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×