Erlent

Vaktin: Ráðast að öryggis­stofnunum í Lysychansk

Hólmfríður Gísladóttir og Ólafur Björn Sverrisson skrifa
Fáir íbúar eru enn í Lysychansk enda varla hægt að finna svæði sem ekki verður fyrir loftárásum.
Fáir íbúar eru enn í Lysychansk enda varla hægt að finna svæði sem ekki verður fyrir loftárásum. Getty

Finnar eru reiðubúnir ef Rússar ráðast gegn þeim og munu verjast ötullega, segir Timo Kivinen, yfirmaður finnska heraflans.

„Mikilvægasta vörnin er á milli eyrnanna, líkt og stríðið í Úkraínu hefur sýnt okkur,“ segir hann.

Kivinen segir Finna hafa undirbúið sig í gegnum árin fyrir nákvæmlega þess konar hernað sem Rússar séu að stunda í Úkraínu. Úkraína hafi staðið í Rússum og það myndi Finnland einnig gera.

Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu fram eftir degi.

Helstu vendingar:

  • Einn af leiðtogum leppstjórnar Rússa í hinu hernumda Zaporizhzhia í Úkraínu segir landamærin milli Rússlands og Úkraínu „verri en Berlínarmúrinn var fyrir Þjóðverja“. „Sameining okkar við Rússland er óumflýjanleg; það ættu ekki að vera nein landamæri á milli okkar,“ sagði Alexander Rogov í samtali við RIA Novosti.

  • Úkraínsk yfirvöld segja ástandið í austurhluta Donbas afar erfitt. Rússar hafa gefið í árásir sínar á Sieverodonetsk og Lysychansk og náð nokkrum byggðum í nágrenninu.
  • Vladimir Pútín, Rússlandsforseti, segist vilja styrkja efnahagsleg bönd við BRICS ríkin; Brasilíu, Indland, Kína og Suður-Afríku.
  • Úkraínumenn segjast hafa gert loftárásir á Snákaeyju og fellt töluverðan fjölda rússneskra hermanna. Umrædd aðgerð er stendur enn yfir, að þeirra sögn.
  • Að minnsta kosti fimmtán almennir borgarar létust í árásum Rússa í Kharkív í gær.
  • Embættismenn á Vesturlöndum segja yfirvöld í Rússlandi standa fyrir átaki til að fá fólk á fátækum svæðum landsins skrá sig til að berjast í Úkraínu. Umræða um framtíð Vladimir Pútín Rússlandsforseta hafi aukist í Rússlandi en ekkert bendi til þess að stöðu hans sé ógnað.
  • Merrick Garland, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Úkraínu í gær og tilkynnti um stofnun teymis sem mun freista þess að draga stríðsglæpamenn til ábyrgðar.
  • Tyrknesk sendinefnd mun ferðast til Rússlands í vikunni til að ræða mögulegar leiðir til að koma kornvöru sjóleiðina frá Úkraínu.



Fleiri fréttir

Sjá meira
×