49 ára kona ákærð fyrir að þvætta 540 milljarða króna Atli Ísleifsson skrifar 15. júní 2022 11:08 Konan, sem er litháískur ríkisborgari, afplánar nú þegar fangelsisdóm vegna annars peningaþvættismáls. Vísir/Vilhelm Lögregla í Danmörku hefur ákært 49 ára konu fyrir að hafa reynt að þvætta 29 milljarða danskra króna, um 540 milljarða íslenskra, meðal annars fyrir rússneska auðmenn.
DR segir frá málinu þar sem fram kemur að konan hafi játað sök þegar hún mætti fyrir dómara í Kaupmannahöfn í morgun. Fram kemur að konan heiti Camilla Christiansen og hafi starfað hjá ráðgjafarstofunum Cph Consulting og svo Dan Consulting, þar sem hún var titluð forstjóri. Fram kemur að hún hafi þó í raun starfað sem strámaður innan félaganna sem haldið hafi utan um fjörutíu dönsk samlagsfélög. Eina hlutverkið hafi þó verið að fela raunverulega eigendur peningastreymi félaganna frá yfirvöldum í Danmörku og erlendis. „Félögin voru þannig sett upp að færslunum var haldið leyndum frá yfirvöldum í Danmörku, Eystrasaltslöndunum og Rússlandi, og þannig komust menn hjá því að greiða skatt,“ sagði konan í réttinum í morgun. Saksóknarnar segja málið af áður óþekktri stærðargráðu í Danmörku. Ekki sé talið að Christiansen hafi verið höfuðpaur starfseminnar, en hafi þó átt sinn þátt í að fela slóð peningana. Konan, sem er litháískur ríkisborgari, afplánar nú þegar fangelsisdóm vegna annars peningaþvættismáls. Reiknað er með að dómur falli í málinu þann 23. júní næstkomandi.
Danmörk Litháen Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“ Innlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Fleiri fréttir Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sjá meira