Lífið

Heima er best: Kolbrún Anna Vignisdóttir

Elísabet Hanna skrifar
Kolbrún og Sölvi hafa komið sér vel fyrir.
Kolbrún og Sölvi hafa komið sér vel fyrir. Aðsend

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna Vignisdóttir býr ásamt maka sínum Sölva Bernódusi Helgasyni og hundinum Brún í risíbúð sem er staðsett í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík.

Í hvaða póstnúmeri býrð þú?

Við búum í 108 Reykjavík. Við elskum þessa staðsetningu, Sölvi bjó í þessu hverfi þegar við kynnumst og ég varð alveg heilluð af Smáíbúðahverfinu. 

„Gróið og fallegt hverfi og staðsetningin er frábær.“
Aðsend

Hvenær fluttir þú inn?

Fyrir akkúrat ári síðan, í júní 2021 flytjum við inn. 

„Fengum afhent mánuði áður og þá fórum við í smá framkvæmdir.“

Fórstu í miklar framkvæmdir?

Heilspörtluðum alla íbúðina, veggi og loft. Það tók í raun mestan tímann og svo að mála allt og lakka eldhúsinnréttinguna. Skiptum líka um borðplötu í eldhúsinu og smíðuðum bekkinn til þess að nýta plássið og fela ofn sem er þar á bakvið.

Risloftið tók Sölvi alveg í gegn og sama með þvottahúsið niðri í kjallara. 

„Við fengum iðnaðarmenn í að flísa ganginn en allt hitt gerðum við sjálf með góðri hjálp vina og fjölskyldu.“

Svalirnar tókum við í gegn bara núna fyrir stuttu og erum svo ánægð með hvernig heppnaðist. Sölvi setti skjólveggi sitthvorum megin, málaði handriðið og setti nýtt gólf.

Hvernig myndir þú lýsa stílnum á heimilinu?

Ég myndi segja að stíllinn hér heima sé í takt við þann tíðaranda sem var þegar húsið er byggt árið 1962.

Aðsend

Erum svolítið að varðveita þennan 70s stíl sem heillar okkur bæði. 

„Ég hef líka alltaf klætt mig í þessum stíl svo það mætti segja að þetta tímabil umlyki mann alveg.“

Hverjir eru þrír uppáhalds hlutirnir á heimilinu og afhverju?

  1. Finnst erfitt að gera upp á milli en glerborðið í stofunni verður eiginlega að fara á listann. Pantaði það á etsy áður en við keyptum íbúðina og var með það í geymslu. Vissi bara alltaf að ég vildi nákvæmlega svona borð á framtíðarheimilið.
  2. Spegillinn sem vinur okkar og leikmyndahönnuðurinn Mukki sérsmíðaði er líka í miklu uppáhaldi. Skúlptúr út af fyrir sig og passar svo fullkomlega hingað inn.
  3. Málverkið í stofunni eftir Ella fósturpabba er mér afar kært enda dásamlega fallegt.
Aðsend

Hver er uppáhalds staðurinn þinn á heimilinu?

Ég elska að sitja með kaffibollann á eldhúsbekknum á morgnana svo eru svalirnar æðislegar.

Eldhúsbekkurinn er í uppáhaldi.Aðsend

Hvað á heimilinu var áhætta sem þú ert glöð að hafa tekið?

Ætli ég verði ekki að nefna eldhúsið. Erum með tvo mjög sterka liti þar inni en ég var einhvern veginn alveg viss um að þetta myndi ganga. Við erum allavega ekki komin með leið eftir þetta ár en svo er alltaf hægt að skipta um liti ef það gerist. 

Erum bæði frekar litríkir karakterar og viljum hafa líf og liti í kringum okkur, tökum hlutunum ekkert of alvarlega og ætli íbúðin endurspegli okkur ekki á einhvern hátt.“

Hvaðan færð þú innblástur?

Ég sæki innblástur víða í kringum mig. Heillast þó mest af bíómyndum og kvikmyndasettum. Svo er auðvitað alltaf eitthvað sem kveikir áhugann í næsta umhverfi og á Instagram.


Tengdar fréttir

Þakkar risaeðlunum fyrir bleika húsið sitt

Bryce Dallas Howard og eiginmaður hennar Seth Gabel opnuðu dyrnar að bleika og litríka heimilinu sínu í Kaliforníu og buðu Architectural Digest í heimsókn. Þau unnu með hönnuðinum Claire Thomas við að hanna heimilið sem hefur mikinn persónuleika.

Keypti 400 bækur á heimilið bara fyrir innlitið

Disney stjarnan Ashley Tisadale opnaði hurðina að heimili sínu í Los Angeles fyrir Architectural Digest. Heimilið hannaði hún sjálf og er stolf af útkomunni en viðurkenndi í viðtalinu að hafa sent eiginmanninn að kaupa 400 bækur fyrir viðtalið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.