Segir Eggert einn fárra sem hafi hlustað á hana Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. júní 2022 23:34 Vítalía Lazareva segir Eggert Þór Kristófersson fráfarandi forstjóra Festar einn fárra sem hafi talað við hana og hlustað á hana eftir að hún sagði sögu sína. Vísir Vítalía Lazareva segir Eggert Þór Kristófersson, fráfarandi forstjóra Festar hf., einn fárra manna sem hafi talað við hana eftir að hún steig fram og lýsti kynferðisofbeldi, sem hún sakar hátt setta menn í samfélaginu um að hafa beitt sig.
Frá þessu greinir Vítalía á Twitter en hún segir þar að hún eigi Eggerti mikið að þakka. „Einn af þeim fáu mönnum sem talaði við mig án þess að þekkja mig, hlustaði og gaf mér tækifærið á að segja mína hlið þegar ÞMJ var búinn að leggja allt aðra sögu á borðið hjá stjórninni,“ skrifar Vítalía í tísti og vísar þar til Þórðs Más Jóhannessonar, fyrrverandi stjórnarformanns Festar, sem er einn þeirra manna sem hún hefur sakað um að hafa beitt sig ofbeldi. Einn af þeim fáu mönnum sem talaði við mig án þess að þekkja mig, hlustaði og gaf mér tækifærið á að segja mína hlið þegar ÞMJ var búinn að leggja allt aðra sögu á borðið hjá stjórninni. Ég á Eggerti mikið að þakka og ég vona að hann viti það.Þetta er spilling og ekkert annað pic.twitter.com/VeNXLdmrTJ— Vítalía Lazareva (@LazarevaVitalia) June 4, 2022 Eggert sagði í vikunni starfi sínu hjá Festi lausu en hann mun láta af störfum 1. ágúst næstkomandi. Fram kom í tilkynningu frá Eggerti að hann hafi verið lánsamur að vinna með „frábæru samstarfsfólki á þessum árum sem hafa gert Festi og dótturfélög að því sem þau eru í dag.“ Vítalía ýjar að því í tísti sínu að eitthvað meira hafi verið að baki vistaskiptunum hjá Eggerti en hún skrifar að „þetta [sé] spilling og ekkert annað.“ Að lesa þessa frétt var erfitt vegna þess að ég veit hvernig þessir menn spila og hvert þeir stefna.Þeir halda að þeir séu ósnertanlegir. ÞMJ Og HJ eru menn sem munu alltaf bakka hvorn annan upp enda leyndarmálin þeirra ansi mörg.Þetta er ekki búið.— Vítalía Lazareva (@LazarevaVitalia) June 4, 2022 Hún bætir við í svari við tístinu að það hafi verið henni erfitt að lesa frétt sem Mannlíf birti um málið í vikunni, og hún hengir við upphaflega tístið. „Ég veit hvernig þessir menn spila og hvert þeir stefna. Þeir halda að þeir séu ósnertanlegir. ÞMJ og HJ eru menn sem munu alltaf bakka hvorn annan upp enda leyndarmálin þeirra ansi mörg. Þetta er ekki búið.“ Mál Vítaíu komst fyrst í kastljósið í janúar eftir að viðtal Eddu Falak við hana í hlaðvarpinu Eigin konur birtist. Þar lýsti Vítalía því að hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi þriggja eldri karlmanna í sumarbústaðarferð, sem hún hafði mætt í til að hitta þáverandi ástmann sinn, sem samkvæmt heimildum fréttastofu er einkaþjálfarinn Arnar Grant. Í kjölfarið var greint frá því að Ari Edwald, þáverandi framkvæmdastjóri Ísey útflutnings, hefði stigið til hliðar úr stjórn fyrirtækisins. Strax sama dag steig Hreggviður Jónsson, þá stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas Capital, úr stjórn þess og stjórnum tengdra fyrirtækja. Hreggviður sagði í yfirlýsingu sem hann sendi út að hann harmaði að hafa ekki stigið úr aðstæðunum sem Vítalía lýsti og honum þætti þungbært að heyra um hennar reynslu. Hann teldi sig þó ekki hafa gerst brotlegan við lög. Þórður Már sagði sig samdægurs úr stjórn Festar vegna ásakananna og Arnar Grant hætti tímabundið störfum hjá World Class, þar sem hann starfaði sem einkaþjálfari í verktakavinnu. Þá lýsti Vítalía því yfir í mars að hún hyggðist kæra Þórð Má, Ara og Hreggvið til lögreglu fyrir kynferðisbrot. Hún hafði þá bókað tíma hjá kærumóttöku kynferðisbrota hjá lögreglu en fréttastofa hefur ekki vitneskju um hvort hún sé búin að leggja fram kæru á hendur þeim.
MeToo Kynferðisofbeldi Mál Vítalíu Lazarevu Festi Tengdar fréttir Eggert hættir sem forstjóri Festar Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar hf. hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst næstkomandi. Gert hefur verið samkomulag um starfslok Eggerts en Festi rekur meðal annars Krónuna, Elko og N1. 2. júní 2022 16:49 Vítalía kærir Þórð, Ara og Hreggvið fyrir kynferðisbrot Vítalía Lazareva ætlar að kæra Þórð Má Jóhannesson, Ara Edwald og Hreggvið Jónsson til lögreglu fyrir kynferðisbrot. Hún hefur bókað tíma hjá kærumóttöku lögreglu til að leggja kæruna fram. Vítalía hefur sakað þá um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi í sumarbústaðarferð í desember 2020. 22. mars 2022 10:28 Er stoppuð úti á götu og þakkað fyrir Vítalía Lazareva segist fá gæsahúð þegar hún hugsar um viðbrögð þjóðarinnar við frásögn hennar af ofbeldi sem hún var beitt af fimm þjóðþekktum mönnum. 5. febrúar 2022 10:14 Mest lesið Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Innlent Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Erlent Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Innlent Bjóða upp á sértíma í líkamsrækt fyrir trans og kynsegin Innlent Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið Innlent Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Assange lætur í sér heyra Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Bjóða upp á sértíma í líkamsrækt fyrir trans og kynsegin Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Fundi frestað til morgundags: „Það kostar að vera með fólk í vinnu“ Ræðismaður segir mikinn baráttuanda í Úkraínumönnum Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið „Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Heimila íshellaferðir á ný Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám JL húsið verður búsetuúrræði fyrir flóttafólk Eyvindur settur landsréttardómari Nýtt björgunarskip komið til landsins Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Færri ferðamenn þýðir lægri dagpeningar ríkisstarfsmanna Ökumaður bakkaði á barn á Ísafirði Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Fundur sem ræður úrslitum hafinn Neituðu að hafa smyglað tuttugu milljónum sígaretta Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Mjúkt vald Íslands út um allan heim Tvímenningar taldir tengjast Elko-málinu Tekist á um menntamál og brúarsmíði Auður mjög tímabundið settur forstjóri Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Sjá meira
Eggert hættir sem forstjóri Festar Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar hf. hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst næstkomandi. Gert hefur verið samkomulag um starfslok Eggerts en Festi rekur meðal annars Krónuna, Elko og N1. 2. júní 2022 16:49
Vítalía kærir Þórð, Ara og Hreggvið fyrir kynferðisbrot Vítalía Lazareva ætlar að kæra Þórð Má Jóhannesson, Ara Edwald og Hreggvið Jónsson til lögreglu fyrir kynferðisbrot. Hún hefur bókað tíma hjá kærumóttöku lögreglu til að leggja kæruna fram. Vítalía hefur sakað þá um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi í sumarbústaðarferð í desember 2020. 22. mars 2022 10:28
Er stoppuð úti á götu og þakkað fyrir Vítalía Lazareva segist fá gæsahúð þegar hún hugsar um viðbrögð þjóðarinnar við frásögn hennar af ofbeldi sem hún var beitt af fimm þjóðþekktum mönnum. 5. febrúar 2022 10:14