Mæta Pólverjum í general prufunni fyrir EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júní 2022 14:35 Íslenska kvennalandsliðið leikur aðeins einn leik fyrir EM. vísir/hulda margrét Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir því pólska ytra í eina vináttulandsleik sínum fyrir Evrópumótið í Englandi.
Illa gekk að finna vináttulandsleiki fyrir íslenska liðið eins og Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, rakti í samtali við Vísi í gær. Nú er ljóst að eini leikur Íslands fyrir EM verður gegn Póllandi 29. júní. Íslenski hópurinn kemur saman til æfinga hér á landi 20. júní og fer til Póllands viku seinna. Íslendingar halda svo til Þýskalands 1. júlí og æfa þar áður en þeir fara til Englands 6. júlí. Fyrsti leikur Íslands á EM er svo gegn Belgíu 10. júlí. Íslenski EM-hópurinn verður kynntur í næstu viku. Hann verður skipaður 23 leikmönnum. Ísland og Pólland hafa mæst fjórum sinnum áður í A-landsleik kvenna. Íslendingar hafa unnið þrjá leiki og einu sinni orðið jafnt. Í fyrsta leik þjóðanna, 13. september 2003, vann Ísland 10-0 sigur. Það er stærsti ósigur í sögu pólska landsliðsins. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sína fyrstu þrennu fyrir íslenska liðið í þeim leik. Pólland er í 33. sæti styrkleikalista FIFA. Pólverjar hafa tapað fjórum af fimm leikjum sínum á þessu ári.
Landslið kvenna í fótbolta EM 2022 í Englandi Tengdar fréttir Svona er EM-búningur Íslands Nú er ljóst hvernig búningum íslenska kvennalandsliðið mun spila í á Evrópumótinu í Englandi í júlí. 2. júní 2022 09:33 Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Fleiri fréttir Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Sjá meira
Svona er EM-búningur Íslands Nú er ljóst hvernig búningum íslenska kvennalandsliðið mun spila í á Evrópumótinu í Englandi í júlí. 2. júní 2022 09:33