Innlent

Lítil hrifning yfir nýrri lands­liðs­treyju: „Eins og úr lagerverslun á Tene“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Það var lítið um jákvæð viðbrögð við nýrri treyju Knattspyrnusambandsins. Sviðsstjóri markaðssviðs KSÍ segir einfaldleika hafa ráðið för.
Það var lítið um jákvæð viðbrögð við nýrri treyju Knattspyrnusambandsins. Sviðsstjóri markaðssviðs KSÍ segir einfaldleika hafa ráðið för. KSÍ

Svo virðist sem að fáir séu hrifnir af nýrri landsliðstreyju Knattspyrnusambandsins sem fumsýnd var í gær. Puma hannaði treyjuna en KSÍ gerði samning við þýska íþróttavörurisann til sex ára árið 2020 og mun fyrirtækið því hanna nokkrar treyjur í viðbót fyrir landsliðin.

Treyjan er tiltölulega látlaus, ljósblá með dökkbláum ílöngum fleti sem nær yfir merkið, en mörgum þykir of lítið hafa verið lagt í hönnunina og hún einkennast af metnaðarleysi.

Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður.

Vísir hafði samband við fatahönnuðinn Guðmund Jörundsson til að fá faglegt mat.

„Ég hefði bara fílað það betur ef einhver hefði allavega reynt að gera eitthvað þó það væri bara heavy ljótt. Þetta er bara hvorki fugl né fiskur.“ sagði Guðmundur í samtali við fréttamann.

„Þetta er eins og ef þú færir í íþróttabúð á Tene og færir í gegnum svona 300 týpur af einhverjum Puma lager-treyjum og þessi treyja væri bara ein af þeim. En maður hefur bara varla skoðun á þessu, þetta er svo ómerkilegt.“

Einfaldleiki réði för

Stefán Sveinn Gunnarsson, sviðstjóri markaðssviðs KSÍ, segir í skriflegu svari Vísis að ferlið á bakvið treyjuna taki allt að að 24 mánuði,

Stefán Sveinn Gunnarsson, sviðsstjóri markaðssviðs KSÍ, segir að erfitt hafi verið að fylgja fyrri treyju eftir.KSÍ

„Puma kynnir okkur ákveðna “Creative direction” eða meginþema hverrar línu. Eftir þessari línu útfæra þeir svo tvær til þrjár tillögur sem við förum yfir hér innanhúss og veitum endurgjöf. Það var ljóst frá fyrstu drögum af þessari nýju treyju að það væri einfaldleiki sem myndi ráða för í landsliðstreyjum Puma þetta skiptið, þetta má glögglega sjá til dæmis á nýjum treyjum Ítalíu, Sviss og fleiri samböndum sem eru í Puma.“ sagði Stefán

„Viðtökur síðustu treyju voru mjög góðar og því vorum við meðvituð um að það yrði erfitt að fylgja henni eftir. Treyjan mun án efa sanna sig og við hlökkum til að sjá strákana og stelpurnar okkar í henni næstu tvö árin."

Mikil óánægja

Það var þó enginn hörgull á fólki sem hafði skoðun á treyjunum á Twitter þar sem sjaldnast er skafað utan af því.

Jón Kári Eldon, vefhönnuður, og Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka, tjáðu skoðun sína með myndrænum hætti.

Atli Fannar Bjarkason, verkefnastjóri vefútgáfu RÚV líkti treyjunni við verðbólguspá og Stefán Pálsson, sagnfræðingur benti á nytsemi dökkbláa „brjóstvasans“, sem komi sér vel fyrir smiði sem notast við hallamál.

Þess ber að geta að von er á annarri treyju sem kvennalandsliðið mun skarta á EM í Englandi í sumar. Það er vonandi fyrir þá sem kvörtuðu yfir þessari treyju að sú treyja verði eitthvað líflegri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×