„Þá hefði ég mögulega ekki orðið tónlistarmaður“ Elísabet Hanna skrifar 2. júní 2022 10:31 Jón Jónsson er nýbakaður faðir í fjórða skipti. Vísir/Vilhelm Jón Jónsson er í dag þekktur sem einn ástsælasti tónlistarmaður landsins en hann segist hafa lagt góðan grunn áður en hlutirnir fóru að rúlla. Hann segir ástarsorg um tvítugt hafa mótað sig og lífið hans hvað mest.
Jón var gestur í Jákastinu hjá Kristjáni Hafþórssyni þar sem hann ræddi meðal annars tónlistina, ferlinn síðustu tólf árin, fótboltann, lífið í Boston, hlaupin, þjóðhátíðarlögin, ástina og lífið. Þáttinn má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan: Eitt og hálft mark Í dag er Jón aðallega í hlaupum þegar kemur að hreyfingu en segir fótboltaferilinn hafa kennt sér mikið um þolinmæði, dugnað og að oft taki langan tíma að byggja upp eitthvað gott. Hann segist ekki hafa farið að spila leiki af viti með FH fyrr en árið 2013 þrátt fyrir að hafa æft íþróttina lengi. „Búinn að sitja bara á bekknum, þolinmóður og æfa vel, þegar maður horfið á þetta var þetta alveg þolinmæði par excellence.“ View this post on Instagram A post shared by Jon Jonsson (@jonjonssonmusic) Sem fótboltamaður á hann eitt mark í efstu deild. „Ég á eitt og hálft eiginlega, 2017 þá þrýsti ég honum í fjær á móti Víking en hann fór í einhvern varnarmann og inn og þeir skráðu það sjálfsmark,“ segir hann glettinn um markið sem hann vill telja með en bætir við: „Svo er líka alveg nett að eiga bara eitt og alveg legendary mark.“ Hann segist ávallt setja fjölskylduna í fyrsta sæti og er hreyfingin engin undantekning á þeirri forgangsröðun en hann segist ná að púsla því ágætlega saman. View this post on Instagram A post shared by Jon Jonsson (@jonjonssonmusic) Ástin er hrein Hann rifjar upp að lagið Ástin er hrein hafi ekki hlotið tilnefningu sem lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár sem vakti upp undrum margra, meðal annars Bubba: Jón segir það gott og blessað að lagið hafi ekki verið tilnefnt en fannst fyndinn punktur sem útvarpsmaðurinn Óli Palli kom með: „Þeir bræður eru allsstaðar en ég hef ekkert illt um þá að segja.“ „Það er samt enginn punktur, að við séum allsstaðar, eigum við þá ekki að fá verðlaun?“ segir Jón. Jón og GDRN tóku lagið vinsæla á Hlustendaverðlaununum í mars. Aftur á móti hafa bræðurnir haldið í það hugarfar að stytta sé vissulega frábær en það að fólk vilji fá þá til þess að fagna með sér sínum stóru stundum og vilji kaupa miða til þess að koma að sjá þá, sá kærleikur sé það sem skiptir öllu máli. View this post on Instagram A post shared by Jon Jonsson (@jonjonssonmusic) Bræðrabönd Hann segir það vera algjör forréttindi að fá að starfa í tónlist og í sama fagi og bróðir sinn, Friðrik Dór Jónsson. Það geri það að verkum að þeir fái að eyða miklum tíma saman og hafi algjöran skilning á starfi hvors annars og geti unnið að verkefnum saman eins og þjóðhátíðarlögin 2018, þar sem þeir prófuðu sig áfram í rappinu. View this post on Instagram A post shared by Jon Jonsson (@jonjonssonmusic) Að sama skapi segir hann það heppilegt að geta oft gert fjölskylduferðir úr skemmtunum úti á landi. „Fjölskyldan með og allt að gerast bingó, lottó.“ Upplifði ástarsorg Aðspurður hvaða atvik hafi mótað hann mest sem persónu er hann fljótur með svar, fyrir utan ákvörðunina að fara í Verzló, þar sem hann kynntist meðal annars ástinni sinni: „Við Hafdís hættum saman einu sinni í eitt ár, þá bæði gat maður upplifað það að vera með brotið hjarta en líka þá var ég bara fokk it og fór til Boston. Ég hefði aldrei gert það og þá hefði ég mögulega ekki orðið tónlistarmaður.“ View this post on Instagram A post shared by Jon Jonsson (@jonjonssonmusic) Hann samdi mikið af fyrstu plötunni sinni þar úti og fékk mikla reynslu af því að koma fram á börum þar sem hann söng bæði frumsamin lög og efni frá öðrum. Sambandsslitin, sem áttu sér stað árið 2005, entust þó ekki lengi og byrjuðu þau aftur saman þegar hann hafði verið úti í námi í tvo mánuði þaðan sem hann útskrifaðist sem hagfræðingur. Í framhaldinu tóku við þrjú ár af fjarsambandi. Jón segist vilja meina að gæði fram yfir magn í samskiptum séu lykillinn að góðu fjarsambandi en í dag eru þau hamingjusamlega gift og eiga fjögur börn. View this post on Instagram A post shared by Jon Jonsson (@jonjonssonmusic) „Það eru ákveðin spor í lífinu sem hafa verið meiri gæfuspor en önnur.“
Tónlist Ástin og lífið Fótbolti Jákastið Tengdar fréttir Nýr Friðrik kominn í fjölskylduna Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir eignuðust sitt fjórða barn á dögunum en fyrir áttu þau einn son og tvær dætur. 21. maí 2022 18:15 Jón Jónsson og Hafdís eiga von á fjórða barninu Hjónin Jón Jónsson tónlistarmaður og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir eiga von á sínu fjórða barni á næsta ári. Jón greindi frá þessu í færslu á Instagram í dag. 25. desember 2021 11:51 „Ungir strákar eru oft að verða gerendur án þess að átta sig á því“ Aktívistinn Sólborg Guðbrandsdóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu Suncity, segir fólk oft ekki átta sig á því hvað felst í kynfræðslu og tengi það aðeins við kynferðislegar athafnir en hún leggur til að fræðslan fari fram á öllum skólastigum. 26. maí 2022 11:30 „Ég var ógeðslega svekktur“ Tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson rifjar upp ævintýrið í kringum Land og syni þegar sveitin var á leiðinni utan þar sem hún ætlaði að slá í gegn. Örlögin gripu aftur á móti í taumana þann 11. september 2001. 17. maí 2022 22:01 Mest lesið Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Ástin blómstraði í karókí Lífið Ása Steinars á von á barni Lífið Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Lífið Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Lífið Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Lífið Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Lífið Bubbi byrjaður á hugvíkkandi efnum Lífið Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Lífið Fleiri fréttir Ása Steinars á von á barni Ástin blómstraði í karókí Michelle Trachtenberg er látin Kjósa ekki Fiennes heldur Brody vegna misskilnings Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Steinhissa en verður Dumbledore Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ „Hann kann að dansa, maður minn!“ Skuggavaldið: Samsæriskenningum aldrei verið beitt svona áður Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Rappar um vímu Sjóðheit stemning í eftirpartýi Flóna 38 ára hreinn sveinn: Er til leið út úr þessum vítahring? Ísraelar þekkja ásakanir um stuld af eigin raun Ómótstæðilegar Créme Brulée bollur með stökkum sykurhjúp Bubbi byrjaður á hugvíkkandi efnum Heillandi heimili í Hlíðunum Hótaði óprúttnum grínista hálsbroti Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Langar að verða menntamálaráðherra og breyta miklu í kjölfarið Mikil ást á klúbbnum Gellurnar fjölmenntu í afmæli Porra Vinur Patriks kom upp um hann Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Gurrý selur slotið Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Sjá meira
Nýr Friðrik kominn í fjölskylduna Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir eignuðust sitt fjórða barn á dögunum en fyrir áttu þau einn son og tvær dætur. 21. maí 2022 18:15
Jón Jónsson og Hafdís eiga von á fjórða barninu Hjónin Jón Jónsson tónlistarmaður og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir eiga von á sínu fjórða barni á næsta ári. Jón greindi frá þessu í færslu á Instagram í dag. 25. desember 2021 11:51
„Ungir strákar eru oft að verða gerendur án þess að átta sig á því“ Aktívistinn Sólborg Guðbrandsdóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu Suncity, segir fólk oft ekki átta sig á því hvað felst í kynfræðslu og tengi það aðeins við kynferðislegar athafnir en hún leggur til að fræðslan fari fram á öllum skólastigum. 26. maí 2022 11:30
„Ég var ógeðslega svekktur“ Tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson rifjar upp ævintýrið í kringum Land og syni þegar sveitin var á leiðinni utan þar sem hún ætlaði að slá í gegn. Örlögin gripu aftur á móti í taumana þann 11. september 2001. 17. maí 2022 22:01