Prestar eigi að bregðast við þegar valdhafar dæmi jaðarsetta til helvítisvistar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 25. maí 2022 15:25 Sindri Geir Óskarsson, sóknarprestur á Akureyri. Mynd/Ísland í dag Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur í Glerárkirkju á Akureyri segir varhugavert að veita eigi prestum tiltal fyrir að vera harðorðir þegar tilefni sé til. Hann segir þá skjóta skökku við að biskup Íslands hafi gagnrýnt ríkisstjórn landsins fyrir fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir en veiti presti tiltal fyrir að gagnrýna það sama. „
Mér finnst viðbrögð biskups vera á pínu gráu svæði, jafnvel bara hættuleg. Alla vega þessi yfirlýsing sem er gefin út þar sem kemur fram að búið sé að veita honum formlegt tiltal,“ segir Sindri Geir í samtali við fréttastofu. Hann vísar þar til yfirlýsingar biskups sem birtist í morgun, þar sem greint var frá að hann hafi veitt sr. Davíð Þór Jónssyni formlegt tiltal vegna orða hans í garð íslensku ríkisstjórnarinnar og flokksliða Vinstri grænna vegna fyrirhugaðra fjöldabrottvísana. Málið hefur verið til mikillar umræðu og verið afar umdeilt en til stendur að vísa á þriðja hundrað hælisleitenda úr landi á næstu dögum og vikum. Biskup gagnrýndi sjálf á mánudag fyrirhugaðar brottvísanir og sagði þær stríða gegn kristnum gildum. „Það kemur yfirlýsing í gær eða fyrradag frá biskup Íslands sem á að vera samstaða með þessu fólki sem verið er að vísa úr landi. Þá er rosalega undarlegt að fara að berja á þeim prestum kirkjunnar sem taka undir þetta með sínum orðum og harðara orðalagi,“ segir Sindri Geir. „Hvað megum við segja?“ Davíð Þór Jónsson sóknarprestur birti svo í gær færslu á Facebook þar sem hann kallaði ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fasistastjórn og sagði sérstakan stað í helvíti fyrir „fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur.“ Orð Davíðs hafa verið gagnrýnd af mörgum og Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna sagði í gær ummæli Davíðs ala á hatursorðræðu. Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur á Akureyri segir það athugavert að hægt sé að veita prestum tiltal gagnrýni þeir yfirvöld. „Í gegn um Íslandssöguna hafa prestar alltaf haft miklu meira frelsi til að gagnrýna yfirvöld heldur en flestir aðrir í samfélaginu, þó það hafi ekki endilega allir nýtt það frelsi. Núna erum við ekki embættismenn, sem hefur kosti en við erum bara starfsmenn á plani. Þetta tiltal sem Davíð er búinn að fá gerir það að verkum að í raun þyrfti hann bara að fá eitt tiltal enn svo hægt sé að segja honum upp,“ segir Sindri. „Þá erum við bara á mjög hættulegum stað hvað varðar málfrelsi og tjáningarfrelsi presta ef einhver í stjórnkerfi kirkjunnar getur, ef hann er ósammála presti eða tekur við kvörtun, ákveðið að ef eitthvað sé vafasamt eða að rugga bátnum að hægt sé að segja honum upp. Mér finnst það hættulegt fordæmi. Ég veit ekki betur en þetta sé fyrsta skiptið eftir að prestar hætta að vera embættismenn sem þetta kemur upp og þá þurfa allir prestar að spyrja sig: Hvað megum við segja?“ „Við erum endalaust að varpa fólki í helvíti“ Sindri Geir segir einnig óljóst að hverju tiltalið snúi. „Snýst tiltalið um það að hann kalli ríkisstjórnina fasíska? Það finnst mér á grennsunni því hvað ætlar maður þá að kalla alvöru fasíska leiðtoga ef við ætlum að setja fasismastimpilinn á þessa ríkisstjórn. Það er eitthvað sem ég myndi sjálfur ekki taka undir,“ segir Sindri. „En þetta með helvítisstimpilinn, þar er hann að nýta það myndmál sem er í okkar trúararfi og sem meistarinn okkar notar. Við erum endalaust að varpa fólki í helvíti, við erum endalaust að valda fólki þjáningu. Sama hvort við lítum til systkina okkar sem eru í sprengjubirgi í Úkraínu eða þessi tæplega þrjú hundruð sem verið er að fara að henda út í óvissu og lífshættu,“ segir Sindri. Helvíti vísi ekki til eftirlífs heldur til manngerða þjáninga Hann segist þeirrar skoðunar að Davíð sé að því leiti innan marka og Davíð sé þar að tala út frá hans trúarhefð. Sindri vekur sérstaklega athygli á umræðu um helvíti í pistli sem hann birti á heimasíðu kirkjunnar í dag. Þar vekur hann athygli á því að það helvíti sem við lesum um í orðum Jesú vísi ekki til einhvers veruleika í eftirlífinu, heldur til manngerðar þjáningar sem við sköpum í lífi samferðarfólksins dag hvern. „Þegar Jesú talar um eldvíti eða helvíti þá stendur þar að baki gríska orðið „Gehenna“ sem er örnefni. Þar er vísað til Hinnom dals utan við Jerúsalem. Á dögum Jesú voru þar logandi ruslahaugar þangað sem líkum þeirra sem stóðu á jaðri samfélagsins var varpað og þau brennd. Þar hafði fyrir tíð gyðinga í landinu helga verið fórnarstaður Kanverja þar sem fólk og börn voru tekin af lífi til að friða guðina. Eldvítið er ekki eitthvað sem bíður fólks í eftirlífinu, helvíti er til staðar hér og nú. Það eru aðstæður og staðir gjörsneydd af nærvegru Guðs, staðir án náungakærleiks og vonar,“ skrifar Sindri Geir í pistlinum. Prestar eigi að bregðast við þegar valdhafar dæmi jaðarsetta til helvítisvistar Hann segir ljóst að Davíð hafi með orðum sínum vísað til þess helvítis sem mannfólkið skapi á jörðinni. „Hann stendur alveg kirfilega þar að hann er að tala þarna um mannskap og helvíti á jörð. Hann er ekkert að vera í einhverju trúarlegu ofbeldi eins og maður sér í Bandaríkjunum þar sem fólki er sagt að fara til helvítis ef það gerir hitt eða þetta. Það er ekki sá þráður sem er í gangi,“ segir Sindri. Hann segir í pistli sínum á vef kirkjunnar að prestar hafi ekkert vald yfir því hvað taki við að þessu lífi loknu en ætli þeir að vera trúir boðskapi sínum sem þjónar kirkjunnar verði þeir að bregðast við þegar valdhafar í íslensku samfélagi „dæma jaðarsett fólk til raunverulegrar helvítisvistar.“ „Ef það kallar á sterk orð til að vekja fólk til umhugsunar - þá er það gott og blessað. Ef þessi sterku orð sr. Davíðs kveikja hjá þér hneykslan eða reiði, eins og orð Jesú gerðu gjarnan hjá þeim sem fóru með völd eða voru í forréttindastöðu, þá er það eflaust til merkis um að þú þurfir að staldra við og horfast í augu við eigin afstöðu.“
Þjóðkirkjan Hælisleitendur Flóttafólk á Íslandi Vinstri græn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir „Ólík sjónarmið“ á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ólík sjónarmið hafa komið fram á ríkisstjórnarfundi í gær um yfirvofandi brottvísanir fólks sem sótt hefur um vernd hér á landi. Hún svarar því ekki beint hvort hún taki undir óánægju félagsmálaráðherra með framgöngu dómsmálaráðherra - en segist taka undir ákveðin sjónarmið þess fyrrnefnda. 25. maí 2022 12:08 „Ummæli Davíðs Þórs dæma sig algjörlega sjálf“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ummæli Davíðs Þórs Jónssonar sóknarprests, sem biskup áminnti hann fyrir, dæma sig sjálf. 25. maí 2022 11:50 Biskup hefur veitt séra Davíð formlegt tiltal fyrir „harkaleg og ósmekkleg skrif“ Biskup Íslands hefur veitt séra Davíði Þór Jónssyni formlegt tiltal fyrir þau „harkalegu og ósmekklegu skrif sem hann viðhafði á Facebook-vettvangi“ sínum í gær. Davíð Þór sagði þar að sérstakur staður væri í helvíti fyrir stjórnarliða Vinstri grænna. 25. maí 2022 11:16 Mest lesið „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Fleiri fréttir „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Sjá meira
„Ólík sjónarmið“ á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ólík sjónarmið hafa komið fram á ríkisstjórnarfundi í gær um yfirvofandi brottvísanir fólks sem sótt hefur um vernd hér á landi. Hún svarar því ekki beint hvort hún taki undir óánægju félagsmálaráðherra með framgöngu dómsmálaráðherra - en segist taka undir ákveðin sjónarmið þess fyrrnefnda. 25. maí 2022 12:08
„Ummæli Davíðs Þórs dæma sig algjörlega sjálf“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ummæli Davíðs Þórs Jónssonar sóknarprests, sem biskup áminnti hann fyrir, dæma sig sjálf. 25. maí 2022 11:50
Biskup hefur veitt séra Davíð formlegt tiltal fyrir „harkaleg og ósmekkleg skrif“ Biskup Íslands hefur veitt séra Davíði Þór Jónssyni formlegt tiltal fyrir þau „harkalegu og ósmekklegu skrif sem hann viðhafði á Facebook-vettvangi“ sínum í gær. Davíð Þór sagði þar að sérstakur staður væri í helvíti fyrir stjórnarliða Vinstri grænna. 25. maí 2022 11:16