Erlent

Vaktin: Rússar hafa náð yfirráðum í Azovstal

Hólmfríður Gísladóttir, Eiður Þór Árnason og Bjarki Sigurðsson skrifa
Úkraínskir hermenn að yfirgefa Azovstal-stálverið í Maríupól.
Úkraínskir hermenn að yfirgefa Azovstal-stálverið í Maríupól. Vísir/AP

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur bæst í hóp þeirra sem hafa sakað Rússa um að „vopnavæða“ matvælaöryggi í heiminum en Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands, segir Rússa ekki munu greiða fyrir útflutningi frá Úkraínu nema gegn afléttingu refsiaðgerða. „Þannig virka hlutirnir ekki, við erum ekki fávitar,“ sagði hann í gær.

Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag.

Helstu vendingar:

  • Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa gjöreyðilagt Donbas, sem þeir segjast vilja „frelsa“ og að svæðið sé nú hreint helvíti.
  • Vadim Shishimarin, 21 árs rússneskur hermaður sem hefur verið ákærður fyrir stríðsglæp í Úkraínu, hefur játað að hafa orðið saklausum manni að bana og beðið eiginkonu hans fyrirgefningar.
  • Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með leiðtogum Svíþjóðar og Finnlands í gær og sagði ríkin njóta fulls stuðings Bandaríkjanna í umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Tyrkir segjast hins vegar enn munu neita ríkjunum um aðild.
  • Rannsókn Spiegel og rússneska miðilsins iStories hefur leitt í ljós að yngsta dóttir Vladimir Pútín Rússlandsforseta ferðaðist að minnsta kosti 50 sinnum til Þýskalands á árunum 2017 til 2019. Pútín hefur sjálfur gagnrýnt auðmenn fyrir tengsl þeirra við Evrópu.
  • Forsvarsmenn McDonald's hafa komist að samkomulagi við Alexander nokkurn Govor um kaup á öllum veitingastöðum keðjunnar í Rússlandi. Govor hyggst reka staðina áfram undir öðru nafni.

Hér má finna vakt gærdagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×