Erlent

Rússar sagðir hafa áhyggjur af framferði hermanna sinna í Maríupól

Samúel Karl Ólason skrifar
Rússneskirhermenn í Maríupól.
Rússneskirhermenn í Maríupól. AP

Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin.

Þetta segja bandarískir embættismenn sem segjast hafa komið höndum yfir leynilegar upplýsingar sem bendi til þessa. Meðal annars hafi hermenn barið og pyntað fólk og farið ránshendi um borgina, samkvæmt því sem AP fréttaveitan hefur eftir ónafngreindum bandarískum embættismanni.

Rússar hófu snemma í innrás þeirra í Úkraínu umsátur um borgina og gerðu umfangsmiklar stórskotaliðsárásir á hana.

Á þeim tæpu þremur mánuðum sem bardagar hafa staðið yfir hafa Rússar verið sakaðir um að valda gífurlegu mannfalli meðal almennra borgara. Þann 9. mars gerðu Rússar loftárás á fæðingardeild á sjúkrahúsi í Maríupól sem vakti athygli um heim allan.

Sjá einnig: Segir Rússa hafa rænt á­hrifa­valdinum sem lifði af á­rásina á fæðingar­spítalann

Um það bil viku síður sprengdu þeir sögufrægt leikhús í borginni sem íbúar notuðu sem sprengjuskýli. Allt að sex hundruð manns dóu í þeirri árás.

Sjá einnig: Rússneska sendiráðið gagnrýnir íslenska fjölmiðla vegna umfjöllunar um Úkraínu

Sömuleiðis standa Rússar frammi fyrir trúverðugum ásökunum um ýmis ódæði og jafnvel stríðsglæpi í norðurhluta Úkraínu, eins og í Bucha og víðar, þar sem rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að myrða almenna borgara í massavís.

Úkraínskir hermenn hafa staðið í hárinu á hersveitum Rússa en síðustu verjendur borgarinnar halda nú til í Azovstal-verksmiðjunni og hafa verið umkringdir þar í nokkrar vikur. Einhverjir þeirra hafa gefist upp á síðustu dögum en óljóst er hve margir.

Þá er óljóst hvað verður um þá en Úkraínumenn hafa sagt að til standi að halda fangaskipti en Rússar hafa gefið til kynna að það standi ekki til. Þess í stað eigi að rétta yfir hermönnunum, eða allavega einhverjum þeirra, og mögulega taka af lífi.


Tengdar fréttir

Vaktin: Borubrattir Rússar segja fall Maríupól marka þáttaskil

Svíar og Finnar hafa skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu.„Finnland og Svíþjóð hafa komist að samkomulagi að fara í ferlið hönd í hönd og á morgun skilum við umsóknunum inn saman,“ sagði Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á fundi með forseta Finnlands í gær.

Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha

Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði.

Meint raunasaga úkraínskrar flóttakonu tekin upp af leyniþjónustu Rússlands

Ríkismiðlar Rússlands birtu nýverið myndband af úkraínskri flóttakonu frá Marípuól þar sem hún sagði Azov-herdeildina umdeildu og aðra úkraínska hermenn hafa framið umfangsmikla stríðsglæpi í borginni. Hún sagði úkraínska hermenn hafa myrt íbúa og skýlt sér bakvið þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×