Tónlist

Systur um dómararennslið: „Ákveðin martröð tónlistarmanna“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Eyþór, Elín, Sigga og Beta ræddu við fréttastofu rétt áður en þau lögðu af stað í Eurovision höllina.
Eyþór, Elín, Sigga og Beta ræddu við fréttastofu rétt áður en þau lögðu af stað í Eurovision höllina. Vísir/Dóra Júlía

„Við neglum þetta í kvöld“ sagði hljómsveitin Systur þegar blaðamenn hittu á þau á hótelinu þeirra fyrir brottför í Pala Alpitour höllina rétt í þessu.

Systur fá auka hljóðtékk í dag vegna mistaka sem urðu á dómararennsli íslenska hópsins seint í gærkvöldi. 

„Við heyrðum í röddunum okkar en við heyrðum ekki í tónlistinni sjálfri, almennilega. Hún var mjög lág. Þá panikkar maður bara, ó nei,“ sagði Sigga um það sem fór í gegnum huga hennar. 

„Það er bara ákveðin martröð tónlistarmanna,“ sagði Elín. 

Þær segja vera með frábæran hóp í kringum sig sem hjálpi þeim og hafi þjálfað fyrir augnablik sem þetta. 

Klippa: Systkinin í viðtali á keppnisdegi

„Þegar maður fer í svona baklás þá þorir maður ekki að syngja út frá hjartanu. Við erum ekki bara að syngja fyrir okkur. Við erum að syngja fyrir Ísland í Eurovision,“ segir Sigga.

Þær eru sammála um að þetta verði bara geggjað í kvöld.

„Ef ekki þá stekk ég bara út í fossinn,“ segir Sigga og vísar til foss á sviðinu í höllinni í Tórínó.

„Við ætlum að bara að vera róleg, safna kröftum og kjarna okkur,“ sögðu systkinin svo um planið þeirra fram að keppninni í kvöld. 

Skammaðar fyrir kveðju til Úkraínu

Systur fengu skömm í hattinn frá Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) í gær fyrir að senda Úkraínu kveðju.

„Við sögðumst elska, sögðumst standa með Úkraínu. Það má ekki, það er of pólitískt. Það má segja við elskum ykkur Evrópa, en ekki Úkraína, eða Ástralía. Það sem skipti okkur mestu máli var að Úkraínufólkið kom og þakkaði okkur fyrir stuðninginn. Við semjum víst ekki reglurnar,“ segir Sigga.

Aðspurð hvort þær ætli að verða við tilmælum EBU fyrir kvöldið líta þær hver á aðra.

„Friður,“ segja þær Systur og ómögulega að spá fyrir um upp á hverju þær taka í kvöld.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum

Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi. 


Tengdar fréttir

Dómararennslið í kvöld gríðarlega mikilvægt fyrir Systur

Felix Bergsson, fararstjóri íslenska teymisins á Eurovision í Tórínó á Ítalíu, var mjög ánægður eftir æfingu íslenska hópsins á sviðinu í dag. Fréttastofa ræddi við Felix fyrir utan Pala Alpitour höllina og sagði hann að æfingin hefði heppnast vel. Keppendur væru rólegir og yfirvegaðir.

EBU slær aftur á hendur íslenska hópsins

Íslenski Eurovision-hópurinn fékk tilmæli frá Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) eftir dómararennslið í dag þar sem athugasemd var gerð við að flytjendurnir hafi lýst yfir stuðningi við Úkraínu í lok flutningsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.