Ancelotti skrifaði fótboltasöguna í annað sinn á fimm dögum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2022 15:00 Carlo Ancelotti fagnar eftir sigur Real Madrid á Manchester City í gær. getty/Jose Breton Á laugardaginn varð Carlo Ancelotti fyrsti knattspyrnustjórinn til að vinna fimm sterkustu deildir Evrópu. Í gær skráði hann sig svo aftur í sögubækurnar.
Real Madrid komst í úrslit Meistaradeildar Evrópu með ótrúlegum 3-1 sigri á Manchester City í framlengdum leik. Madrídingar töpuðu fyrri leiknum í Manchester, 4-3, og lentu 0-1 undir á 73. mínútu í leiknum á Santiago Bernabéu í gær. En eins og í fyrri leikjum í útsláttarkeppninni gafst Real Madrid ekki upp. Varamaðurinn Rodrygo skoraði tvö mörk á jafn mörgum mínútum undir lokin og því þurfti að framlengja. Þar skoraði Karim Benzema þriðja mark Real Madrid sem tryggði liðinu sæti í úrslitaleiknum. Þetta er í fimmta sinn sem Ancelotti kemur liði í úrslit Meistaradeildarinnar, eitthvað sem enginn annar hefur afrekað. Ancelotti kom AC Milan í úrslit Meistaradeildarinnar 2003, 2005 og 2007 og Real Madrid 2014. Lið hans unnu leikina 2003, 2007 og 2014. Ancelotti varð einnig Evrópumeistari sem leikmaður Milan 1989 og 1990. Real Madrid er þegar búið að vinna Spánarmeistaratitilinn. Auk þess hefur Ancelotti orðið Ítalíu-, Frakklands-, Englands og Þýskalandsmeistari á afar farsælum stjóraferli.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Mest lesið KR slítur samstarfinu „án nokkurs fyrirvara“ Íslenski boltinn Ólafur Karl þénaði mest af leikmönnum Bestu deildarinnar í fyrra Íslenski boltinn Raygun á rúðuþurrkunni og brettakappinn í klósettinu Sport KR áfrýjar niðurstöðu KSÍ Íslenski boltinn Kristján tekjuhæsti þjálfarinn á Íslandi Sport Hafði gott af of löngu banni Íslenski boltinn Stúkan ræddi kæru KR-inga: „Mér finnst hún skandall og ekkert annað“ Íslenski boltinn KSÍ hafnar kröfu KR Íslenski boltinn Kallaði Kevin Durant veikgeðja Körfubolti Pétur í aflitun eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Fleiri fréttir Palmer besti ungi leikmaðurinn en þó ekki í liði ársins Sterling ekki heldur í hóp hjá Chelsea í Sambandsdeildinni Nik eftir veisluna í Laugardal: Viljum halda pressunni á Val KR slítur samstarfinu „án nokkurs fyrirvara“ Hákon Arnar með stoðsendingu í mikilvægum sigri Lille Uppgjörið og viðtöl: Valur - Fylkir 2-0 | Bikarmeistararnir höfðu betur Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-4 | Miklir yfirburðir Blika í blíðunni KR áfrýjar niðurstöðu KSÍ Antony hreinsaður af ásökunum í Brasilíu KSÍ hafnar kröfu KR „Hann setti á sig súperman-skikkju“ Emelía með slitið krossband Ólafur Karl þénaði mest af leikmönnum Bestu deildarinnar í fyrra Pétur í aflitun eftir bikarmeistaratitilinn Willum hlustaði á hálftíma ræðu frá Tom Brady fyrir fyrsta leik Lítil hamingja á heimavelli hamingjunnar Stúkan ræddi kæru KR-inga: „Mér finnst hún skandall og ekkert annað“ Sjáðu Blikana nýta sér hjálp Skagamanna og ná í skottið á toppliði Víkings Hafði gott af of löngu banni Fulham tekur Berge fram yfir McTominay Atli Barkar spenntur fyrir næsta kafla „Ég ætla rétt að vona að menn hafi ekki verið að spara sig“ Ísak Snær: Held að það sé alltaf einhvers staðar þarna aftast í hausnum „Við vorum tilbúnir að þjást“ Juventus og Atalanta byrja á stórsigrum Uppgjörið: Víkingur R. - ÍA 1-2 | Skagamenn fyrstir til að vinna í Víkinni Síungur Vardy tryggði nýliðunum stig Jóhann Berg á leið til Sádi-Arabíu Uppgjörið og viðöl: FH - Valur 2-2 | Ótrúleg dramatík í Kaplakrika Mikael skoraði í stórsigri AGF Sjá meira