Neytendur

Segir hækkanir hjá mat­vöru­verslunum furðu­legar þegar þær skili milljarða hagnaði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ.
Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Vísir/Egill

Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir það skjóta skökku við að matvöruverslanir séu að hækka verð á vörum á sama tíma og tilkynnt hafi verið um margra milljarða króna hagnað hjá þessum sömu fyrirtækjum. 

Verðbólga hér á landi hefur hækkað upp í 7,2 prósent og hefur ekki mælst hærri síðan í maí 2010, þegar hún nam 7,5 prósentum. Stýrivextir gætu hækkað um allt að eitt prósentustig í vikunni ef spár bankanna ganga eftir. Formaður VR sagði í samtali við fréttastofu í kvöldfréttum að slíkt komi sér gríðarlega illa fyrir heimilin í landinu og biðlaði til peningastefnunefndar Seðlabankans að finna aðrar leiðir. 

Verkefnastjóri verðbólgueftirlits ASÍ sagði þá í kvöldfréttum að verðbólgan mælist á mjög breiðum grundvelli. Verðbólguna megi því nema í mörgum vöruflokkum en líka þjónustu. 

„Það sem er að hækka mest í verði er bensín, húsnæði og svo er matvara að hækka töluvert mikið í verði. Við erum líka að sjá töluverðar verðhækkanir á ýmissi þjónustu, þar á meðal á opinberri þjónustu,“ sagði Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

Aðspurð hvort búast megi við enn meiri hækkun verðbólgu segir hún það velta á viðbrögðum stjórnvalda. 

„Það fer auðvitað bara eftir því hvað stjórnvöld gera, bæði  hvað varðar hækkanir á húsnæði og eins hvað varðar hækkanir á opinberum gjöldum. Það skýtur dálítið skökku við að opinber þjónusta sé að hækka svona mikið á tímum sem þessum. En þá veltur það líka á því hvað fyrirtækin gera,“ sagði Auður. 

Hún segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi inn í og með mun sterkari hætti. Þó velti verðlagshækkanir ekki aðeins á þeim. 

„Það er mjög furðulegt að sjá fyrirtæki hækka verð, eins og stórar matvöruverslanir, á sama tíma og er tilkynnt um margra milljarða króna hagnað hjá þessum fyrirtækjum, sem við sáum núna í vikunni,“ sagði Auður. 

Peningastefnunefnd Seðlabankans mun koma saman á miðvikudag og tilkynna hversu mikið stýrivextir bankans hækka við næstu vaxtaákvörðun. Stóru bankarnir þrír gera ráð fyrir að hækkunin muni vera um hálft til eitt prósentustig. 


Tengdar fréttir

Spá því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,5 prósentustig

Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabankans komi til með að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentustig við næstu vaxtaákvörðun. Gangi sú spá eftir fara vextirnir úr 2,75% í 3,25% þann 4. maí en þeir hafa ekki verið jafnháir frá því á seinasta ársfjórðungi 2019.

Verðhækkun á innfluttu byggingarefni brýst fram með látum

Vísitalan fyrir innflutt byggingarefni hækkaði um 5,5 prósent í apríl en ekki hefur sést viðlíka hækkun á verði innflutts byggingarefnis frá því að Hagstofan byrjaði að birta sundurliðun byggingarvísitölunnar í byrjun árs 2010.

Út­lána­skrið gæti hvatt Seðla­bankann enn frekar til að grípa fast í taumana

Kraftmikill útlánavöxtur bankanna í mars er enn eitt merkið um að efnahagsumsvif séu meiri en áður var búist við og því eru auknar líkur á því að Seðlabanki Íslands bregðist harkalega við aukinni verðbólgu á vaxtaákvörðunarfundi bankans í næstu viku. Þetta segir Stefán Broddi Guðjónsson, sérfræðingur hjá markaðsviðskiptum Arion banka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×