Skoðun

Nota­lega flug­fé­lagið

Reynir Heiðar Antonsson skrifar

Fimmtudaginn 2.júní verður stór dagur í samgöngumálum Akureyringa og raunar landsbyggðarinnar allrar, en þá hefur sig til flugs vél fyrsta millilandaflugfélagsins á Íslandi með höfuðstöðvar utan suðvesturhornsins.

Fyrsta flug hins notalega Niceair flugfélags verður til Kaupmannahafnar og er það dáldið skemmtileg tilviljun að gamli höfuðstaðurinn skuli verða fyrir valinu. Því Akureyri hefur löngum verið talinn dálítið danskur bær og þarf ekki nema að nema nefna Ráðhústorgið sem dæmi. Jafnvel eru til kenningar um það að sjálft nafnið Akureyri sé af dönskum uppruna.

Upphaf þessa millilandaflugs héðan frá Akureyri mun án efa hafa mikil og góð áhrif fyrir bæinn og raunar norðuland allt. Hér mun væntanlega fjölga ferðamönnum sem kallar á meiri innviðauppbyggingu t.d Hótel og gististaði en þetta mun einnig breyta miklu fyrir fólkið á svæðinu. Líklegt er að Reykjavík muni nú fá samkeppni bæði frá London og Kaupmannahöfn hvað varðar hvers konar þjónustu og verslun. Það er ekki dýrara að skreppa til London eða Köben en til Reykjavíkur og ólíklegt að fargjöldin suður munu lækka í kjölfarið meðan þeir sem sjá um innanlandsflugið í dag gera það. Einnig er hugsanlegt að hægt væri að sækja aukna heilbrigðisþjónustu til þessara borga en að vísu fylgir sá böggull skammrifi að Sjúkratryggingar Íslands eru vægast sagt tregar til að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu erlendis þó slíkt myndi án efa létta á biðlistum hér. Hér kæmi aðild að Evrópusambandinu sér vel.

Þá munu möguleikarnir til að halda ráðstefnur, tónleika og aðra menningarviðburði hér aukast af því gefnu að einhverjir innviðir verði uppbyggðir t.d. stærri tónleikahús líkt og Atli Örvars hefur sagt að þetta beina flug muni breyta miklu fyrir hans starfssemi. Við höfum þegar misst af viðburðum vegna skorts á gistirými og má nefna nýlegt heimsmeistaramót í íshokkí sem líklega hefur ekki verið haldið á Akureyri vegna skorts á aðstöðu.

Þetta nýja millilandaflug er mjög í anda þess að Akureyri verði sú græna svæðisborg sem vilji er til að hún verði því greiðar samgöngur eru alltaf lykillinn að sjálfstæðri tilveru.

Höfundur er stjórnmálafræðingur og skipar 16. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akureyri.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×