Skoðun

Takk, kæri kennari!

Björn Páll Fálki Valsson skrifar

Ég vil byrja á því að þakka þér kærlega fyrir það starf sem þú hefur innt af hendi um leið og þú færð í fangið meira álag á sömu launum.

Okkur í M-listanum finnst að þú eigir betra skilið.

Skref eitt:

  • Hækkum grunnlaun leikskólakennara um 14%.
  • Skref eitt tæki gildi 1.ágúst 2022.

Skref tvö:

  • Aukinn stuðningur við grunnskólakennara.
  • Skref tvö tæki gildi ekki seinna en 1.janúar 2023.

Skref þrjú:

  • Koma á hvatakerfi hjá leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar, þar sem þrettándi mánuðurinn er í boði.
  • Skref þrjú tæki gildi sem fyrst.

Fyrsta skrefið er að ráðast á rót vandans sem er að fjölga leikskólakennurum í Hafnarfirði, í dag er innan við 25% menntaðir leikskólakennarar við störf hjá leikskólum Hafnarfjarðar. Lögum samkvæmt eiga þeir að vera 66%, þeim hefur aðeins fækkað á kjörtímabilinu. Leikskólar verða að geta sinnt sínum lögbundnu skyldum enda snýr hlutverk hans að börnum tryggja þeim gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska undir handleiðslu leikskólakennara.

Skref tvö er ekki síður mikilvægt, innleiðing skóla án aðgreiningar verður að fylgja aukinn stuðningur við kennara ef við viljum þjóna hverjum nemanda á hans forsendum.

Í dag eru kennarar oft með fjölbreyttan nemendahóp, þar sem hluti hópsins glímir við raskanir af ýmsu tagi og sífellt fleiri börn með annað móðurmál en íslensku, auknar kröfur eru frá foreldrum en áður og aukið vinnuálag tengt ýmsum þáttum skólastarfsins. Sem betur fer gengur þetta oft frábærlega hjá okkar flottu kennurum, nú er bara komið að því að kennarar þurfa mikinn stuðning frá skólastjórnendum og fjölbreyttum fagstéttum sem þurfa að vera til staðar í skólakerfinu. Það er hlutverk þeirra sem gefa kost á sér í bæjarstjórn Hafnarfjarðar að tryggja góðan stuðning við kennara og skólastjórnendur, það ætlum við í Miðflokknum að gera.

Skref þrjú. Tilgangur hvatakerfa er að sameina hagsmuni starfsmanna og íbúa með því að umbuna starfsmönnum fyrir að uppfylla væntingar íbúa um árangur í starfi. Aukin ánægja starfsfólks getur einnig skilað sér í færri forföllum með minni starfsmannaveltu þar sem sumir árgangar hafa verið að fá nýjan umsjónarkennara nánast á hverju skólaári.

Við erum líka í samkeppni við önnur sveitarfélög um kennara, ég vona að þessi þrjú skref séu í áttina að betra daglegu skólastarfi.

Góð leið fyrir þig.

Höfundur skipar 4. sæti á lista Miðflokksins og óháðra í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×