Innlent

Fjörug dag­skrá á mót­mælum á Austur­velli

Árni Sæberg skrifar
Frá mótmælafundinum síðasta laugardag.
Frá mótmælafundinum síðasta laugardag. Vísir/Margrét

Gert er ráð fyrir fjölmennum fundi á Austurvelli í dag þar sem sölunni á Íslandsbanka verður mótmælt í fjórða sinn.

Upphitun fyrir mótmæli dagsins á Austurvelli hefst klukkan 13:00 en formleg dagskrá klukkan 14:00. Þá hefst einnig bein útsending frá mótmælunum í spilaranum hér að neðan:

Síðast voru mótmæli á Austurvelli fyrir viku, þann 23. apríl, og er óhætt að segja að fundurinn hafi verið fjölmennur. Leikurinn verður endurtekinn í dag þegar bankasölunni verður aftur mótmælt, nú í fjórða sinn.

Á sama tíma og mótmælin fara fram í Reykjavík fara önnur fram á Ráðhústorginu á Akureyri. Krafa mótmælenda hefur verið að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra víki og ríkisstjórnin bregðist við en aðspurð segist eiga von á að mótmælin haldi áfram þar til eitthvað er gert.

Óhætt er að fullyrða að nokkur hiti verði í framsögumönnum sem og þeim sem sækja mótmælin enda hefur orðið vart við megna óánægju meðal fólks með söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Dagskrá mótmælanna:

  • 13:00 Reggí að hætti Bigga 
  • 13:30 Reykjavíkurdætur, rapp 
  • 13:50 Rebecca Lord, uppistand 
  • 14:00 Brynja Hjálmsdóttir, ljóð 
  • 14:03 Fundur settur 
  • 14:05 Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, ræða 
  • 14:12 Hundur í óskilum, söngur um Hrun 
  • 14:20 Hulda Vilhjálmsdóttir, þula fátækrar konu 
  • 14:25 Karl Héðinn Kristjánsson, ræða 14:30 
  • Brúðurnar koma, leikhús 14:35 
  • Atli Þór Fanndal, ræða 14:45 
  • Hundur í óskilum, söngur um bankasölu 
  • 14:52 Fundi slitið 
  • 14:55 Reggí að hætti Bigga



Fleiri fréttir

Sjá meira


×