„Hann var ósáttur og við vildum ekki hafa einhverja neikvæðni í kringum liðið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2022 11:30 Isaiah Manderson stóð ekki undir væntingum hjá KR. vísir/bára Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, segir að það fyrir verið öllum aðilum fyrir bestu að Bandaríkjamaðurinn Isaiah Manderson yfirgæfi félagið.
KR greindi frá því í gær að félagið hefði komist að samkomulagi við Manderson um að leysa hann undan samningi. KR-ingar hefja leik í úrslitakeppni Subway-deildarinnar annað kvöld þegar þeir sækja deildarmeistara Njarðvíkinga heim. Manderson lék aðeins fimm leiki með KR og bara rétt tæpar nítján mínútur að meðaltali í þeim. Hann skoraði 12,0 stig að meðaltali í leik og tók 5,2 fráköst. KR-ingar unnu aðeins einn af fimm leikjum sem Manderson spilaði. Helgi segir að Manderson hafi viljað spila meira en hann hafi átt erfitt með að finna aukinn spiltíma fyrir hann. „Hann var ósáttur með sitt hlutverk og við áttum í erfiðleikum með að finna fleiri mínútur fyrir hann. Hann var ósáttur og við vildum ekki hafa einhverja neikvæðni í kringum liðið. Þannig við tókum þessa ákvörðun í staðinn fyrir að hafa hann ósáttan á bekknum og inni í klefa,“ sagði Helgi við Vísi í dag. „Þetta var bara samkomulag okkar á milli. Hann langaði augljóslega að spila meira og það eðlilega en við áttum erfitt með að finna þær mínútur fyrir hann. Þetta var lausnin.“ Þrátt fyrir að vera án bandarísks leikmanns fara KR-ingar brattir inn í úrslitakeppnina. „Jájá, við höfum spilað megnið af okkar leikjum eftir áramót Kanalausir. Við förum inn í úrslitakeppnina af fullum krafti,“ sagði Helgi. KR endaði í 8. sæti Subway-deildarinnar með tuttugu stig. KR-ingar töpuðu fyrir Valsmönnum, 54-72, í lokaumferðinni á fimmtudaginn.
Subway-deild karla KR Mest lesið Lést sex dögum eftir að hafa orðið meistari Sport Gamli maðurinn lét Littler svitna Sport Ein skærasta stjarna NBA tefldi við fólk úti á götu Körfubolti Sara Björk jafnaði tvisvar fyrir Al-Qadisiya Fótbolti Atalanta missteig sig eftir ellefu sigra í röð Fótbolti Cecilía í liði ársins Fótbolti Ráku annan þjálfarann á tímabilinu Fótbolti Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Enski boltinn „Ég er einum heimsmeistaratitli frá því að jafna ferilinn hans“ Sport Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Fleiri fréttir Ein skærasta stjarna NBA tefldi við fólk úti á götu Elvar og félagar upp úr fallsæti eftir langþráðan sigur Tryggvi og Bilbæingar luku árinu með sigri Samspil Elvars og Tryggva meðal tilþrifa ársins Riley búinn að fá nóg og þvertekur fyrir að Miami muni skipta Butler Butler sagður vilja burt frá Miami sem fyrst „Ég elska NFL en jóladagur er okkar“ 76ers sóttu sigur úr Garðinum Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Ruddi Wembanyama og var rekinn af velli fyrir reiðiskast Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Martin og félagar burstuðu botnslaginn Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Versta frumraun í úrvalsdeild? Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Selfoss fær leikmann sem hefur spilað meira en hundrað NBA leiki „Sást frekar bersýnilega að það er ekki mikið sjálfstraust í liðinu“ „Valsararnir voru bara betri“ „Við þurfum að girða okkur í jólafríinu“ Enn eitt tapið og Martin í minna hlutverki en vanalega Uppgjörið: Valur - Tindastóll 89-80 | Meistararnir upp úr fallsæti „Fyrirgefðu að ég var ekki pabbinn sem þú vildir að ég værir“ Körfuboltakvöld í beinni frá Minigarðinum „Nánast afsökuðu meðdómara sinn“ „Setjið stóra mynd af honum á skjáinn og leyfið fólki að horfa“ „Spiluðum glimrandi vel í sókn“ Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 105-86 | Keflavík fór illa með Jordan-lausa Þórsara „Við þurfum bara að finna lausnir og bæta okkar leik“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 90-100 | Hilmar Smári í ham Uppgjörið: Álftanes - Höttur 89-92 | Ótrúleg endurkoma hjá Hetti Sjá meira