Innlent

Lést í ferð á vél­sleða nærri Bröttu­brekku

Atli Ísleifsson skrifar
Slysið varð nærri Bröttubrekku á Vesturlandi.
Slysið varð nærri Bröttubrekku á Vesturlandi.

Karlmaður er látinn eftir að vélsleðaslys varð nærri Bröttubrekku á Vesturlandi í gærkvöldi.

Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi. Þar segir að maðurinn hafi verið einn á ferð á vélsleða um kvöldmatarleytið í gær. 

„Vélsleðamenn sem áttu leið um fundu hinn látna en tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur.

Banaslysið er til rannsóknar,“ segir í tilkynningunni frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×