Innlent

Lovísa leiðir lista Við­reisnar í Mos­fells­bæ

Atli Ísleifsson skrifar
Frambjóðendur Viðreisnar í Mosfellsbæ.
Frambjóðendur Viðreisnar í Mosfellsbæ. Viðreisn

Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur og varabæjarfulltrúi, mun leiða lista Viðreisnar í Mosfellsbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi.

Í tilkynningu frá flokknum segir að framboðslistinn hafi verið samþykkur á félagsfundi í gær.

„Framboðslistinn samanstendur af 11 konum, 10 körlum og 1 kvár. Meðalaldur listans er 43,9 ár, elsti frambjóðandinn er 69 ára en yngsti 19 ára, og búseta frambjóðenda er dreifð um öll hverfi bæjarins.

Oddviti listans er Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur og varabæjarfulltrúi. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson, auglýsingastjóri og bæjarfulltrúi. Í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir, verkfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Lovísu að það sé margt sem þurfi að huga að en það sé skýr sýn flokksins að Mosfellsbær eigi að vera leiðandi í umhverfismálum og þjónustu við fatlað fólk, börn og eldri borgara þannig að allir fái notið sín í bænum. „Skipulagsmál hafa verið og eru stór áskorun í ört vaxandi bæjarfélagi. Við leggjum áherslum á ábyrga fjármálastjórn og uppbyggingu kröftugs atvinnulífs. Eins viljum við einfalda íbúum lífið í bænum með því bæta stafræna þjónustu bæjarins og tryggja gagnsæja stjórnsýslu. Við hlökkum til að takast á við þessi mikilvægu verkefni og leggja okkar af mörkum til að gera bæinn betri,“ segir Lovísa.

Framboðslisti Viðreisnar í Mosfellsbæ 2022

  1. Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur og varabæjarfulltrúi
  2. Valdimar Birgisson, auglýsingastjóri og bæjarfulltrúi
  3. Elín Anna Gísladóttir, verkfræðingur og varaþingmaður
  4. Ölvir Karlsson, lögfræðingur
  5. Olga Kristrún Ingólfsdóttir, viðskiptafræðingur og verkefnastjóri
  6. Atlas Hendrik Ósk Dagbjarts, framhaldsskólanemi
  7. Ágústa Fanney Snorradóttir, framleiðandi og kvikmyndagerðarkona
  8. Rúnar Már Jónatansson, rekstrarstjóri
  9. Guðrún Þórarinsdóttir, viðurkenndur bókari
  10. Þórarinn Helgason, nemi
  11. Gréta Jóhanna Ingólfsdóttir, skrifstofufulltrúi
  12. Jón Örn Jónsson, verkefnastjóri
  13. Emilía Mlynska, mannfræðingur og náms- og starfsráðgjafi
  14. Kjartan Jóhannes Hauksson, sölu- og þjónustufulltrúi
  15. Hrafnhildur Jónsdóttir, öryrki
  16. Reynir Matthíasson, framkvæmdastjóri
  17. Ólöf Guðmundsdóttir, kennari
  18. Magnús Sverrir Ingibergsson, húsasmíðameistari
  19. Ásta Lilja Maack Sigurðardóttir, leiðbeinandi á leikskóla
  20. Sigurberg Guðbrandsson, rafvirki
  21. Hildur Björg Bæringsdóttir, verkefnastjóri
  22. Bolli Valgarðsson, ráðgjafi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×