Viðskipti innlent

Fjórir lífeyrissjóðir meðal sex stærstu hluthafa

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins er annar stærstu hluthafinn í Íslandsbanka eftir útboð í síðustu viku.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins er annar stærstu hluthafinn í Íslandsbanka eftir útboð í síðustu viku. Vísir/Vilhelm

Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Capital Group er ekki lengur annar stærsti hluthafi Íslandsbanka heldur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins með 5,23 prósenta hlut. Áætlað er að Bankasýsla ríkisins birti uppgjör á útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka í dag.

Veruleg umframeftirspurn var í útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5 prósenta hlut  í Íslandsbanka í síðustu viku. Alls buðu 430 fjárfestar í 450 milljón hluti í bankanum en verð á hverjum hlut var 117 krónur eða fjögur prósentum lægra en markaðsgengi. Í morgun var verðið níu prósentum hærra. 

Greinendur á markaði sem fréttastofa ræddi við í síðustu viku gagnrýndu verðið í útboðinu vegna umfram eftirspurnarinnar þar sem ekki hafi verið farið eftir lögmáli framboðs og eftirspurnar sem gjarnan er sagt ríkja á hlutabréfamörkuðum. 

Fjármálaráðherra sagði á móti að mjög gott verð hefði fengist fyrir bankann og minni afsláttur hefði verið gefinn en í sambærilegum útboðum erlendis.

Fram hefur komið að þrír svokallaðir stjórnendur eða nákomnir aðilar stjórnenda hafi keypt hluti í útboðinu. Ríkharður Daðason, fjárfestir og fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, keypti fyrir tæpar 27 milljónir króna. Ríkharður er sambýlismaður Eddu Hermannsdóttur, markaðs- og samskiptastjóra bankans.

Ari Daníelsson, stjórnarmaður í Íslandsbanka, keypti fyrir tæpar 55 milljónir króna og Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfestasviðs, fyrir rúmar 11 milljónir. Fram hefur komið að aðeins hæfir fjárfestar hafi fengið að kaupa í útboðinu en Fjármálaeftirlitið heldur utan viðmið um hverjir séu hæfir fjárfestar.  

Nokkur breyting varð á stærstu hluthöfum bankans eftir útboðið. Nú er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins annar stærsti hluthafinn á eftir ríkinu. Gildi lífeyrissjóður sá þriðji og bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Capital Group í fjórða sæti en var annar stærsti fyrir útboðið. Allir eru með yfir fimm prósenta hlut í bankanum en voru áður með um og yfir þrjú prósent.

Fram hefur komið að Bankasýsla ríkisins muni síðar í dag birta uppgjör eftir útboðið en engar upplýsingar fengust þaðan í morgun.


Tengdar fréttir

Tilboð frá 430 fjárfestum og minni afsláttur en í samskonar útboðum

Meginþorri verðbréfasjóða, fjársterkra einstaklinga og tryggingafélög, sem voru metnir langtímafjárfestar af hálfu Bankasýslunnar, fengu úthlutað bréfum í Íslandsbanka sem nam yfir 40 prósentum af þeirri upphæð sem þeir skráðu sig fyrir í lokuðu útboði til fagfjárfesta sem lauk í gærkvöldi þegar ríkið seldi 22,5 prósenta hlut fyrir 53 milljarða.

Óánægja með að fagfjárfestar hafi fengið afslátt

Mikil umfram eftirspurn var í fagfjárfesta útboði Bankasýslu ríkissins á tæplega fjórðungs á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Verð á hvern hlut til fagfjárfesta er um 10 prósent lægra en gengi dagsins í Kauphöll nú í morgun og um 4 prósent lægra en í gær. Óánægju gætir með afsláttinn og úthlutun á hlutum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×