Tónlist

Ópíóðar og þung­lyndis­lyf í blóði trommarans

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Aðdáendur hljómsveitarinnar hafa lagt blóm fyrir utan hótel í Bogotá, hvar Hawkins fannst látinn.
Aðdáendur hljómsveitarinnar hafa lagt blóm fyrir utan hótel í Bogotá, hvar Hawkins fannst látinn. Getty/Rovere

Leifar tíu mismunandi lyfja og efna, meðal annars ópíóða, þunglyndislyfja og kannabis, fundust í blóði trommarans Taylor Hawkins sem féll frá á föstudaginn aðeins fimmtíu ára gamall. 

Breska ríkisútvarpið greinir frá því að niðurstöður úr eiturefnaprófi hafi leitt þetta í ljós.

Hawkins gerði garðinn frægan með rokkhljómsveitinni Foo Fighters en hljómsveitin hefur verið á tónleikaferðalagi um Suður-Ameríku og átti að spila á Estereo Picnic tónlistarhátíðinni í Bogotá í Kólumbíu á föstudaginn. Tónlistarhátíðin gaf út yfirlýsingu á Facebook þar sem tilkynnt var að sveitin myndi ekki koma fram á hátíðinni vegna fráfall Hawkins.

Hawkins hafði verið trommari Foo Fighters í 25 ár af þeim 28 árum sem sveitin hefur verið starfandi. Hann tók við keflinu af fyrsta trommara sveitarinnar William Goldsmith árið 1997.

Meðlimir Foo Fighters greindu frá andláti Hawkins í tísti á föstudaginn: „Fjölskyldan sem Foo Fighters er er miður sín vegna hörmulegs andláts okkar heittelskaða Taylor Hawkins, sem lést langt fyrir aldur fram.“ 

Þar sagði einnig að andi Hawkins og smitandi hlátur hans muni lifa með sveitinni það sem eftir er. 

Aðdáendur sveitarinnar hafa komið saman fyrir utan hótelið, sem sveitin hafði gist á í Kólumbíu, til að minnast Hawkins, sem hafði fundist látinn á hótelherbergi sínu. Sjúkraliðar voru kvaddir á vettvang eftir að Hawkins kvartaði undan verkjum í brjósti en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.