Innlent

Flestir laun­þegar fá launa­hækkun 1. maí

Eiður Þór Árnason skrifar
Lífskjarasamningarnir voru undirritaðir árið 2019.
Lífskjarasamningarnir voru undirritaðir árið 2019. Vísir/Vilhelm

Hagvaxtarauki Lífskjarasamningsins kemur til framkvæmda þann 1. apríl og verður greiddur út 1. maí. Launataxtar munu hækka um 10.500 krónur og almenn laun um 7.875 krónur.

Samkvæmt Lífskjarasamningnum virkjast hagvaxtarauki ef landsframleiðsla á hvern íbúa hækkar umfram eitt prósent á milli ára að raunvirði. Hagstofa Íslands hefur birt bráðabirgðaniðurstöðu um 2,53% hagvöxt á mann á síðasta ári og virkjast hagvaxtaraukinn því í fjórða þrepi. Í kjarasamningnum er kveðið á um fimm þrep sem taka mið af því hversu mikill hagvöxtur mælist.

Yfir þrjátíu stéttarfélög eru aðilar að Lífskjarasamningnum og eiga því fjölmargir von á því að fá útgreidda launahækkun um þar næstu mánaðamót. 

Í fyrsta skipti sem hagvaxtarauki tekur gildi

Forsendunefnd Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hefur hist til að ræða greiðslu hagvaxtaraukans og ákvað að hann komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í Lífskjarasamningnum. Greint er frá þessu í tilkynningum frá ASÍ og SA.

Lífskjarasamningur var undirritaður í apríl 2019 og er þetta í fyrsta skipti sem samið er um sérstakan viðauka sem tekur mið af stöðu hagkerfisins. 

SA fóru þess á leit við verkalýðshreyfinguna að gert yrði samkomulag um að hagvaxtarauki komi ekki til framkvæmda, þar sem fyrirtæki væru ekki í stakk búin til að taka á sig frekari launahækkanir. Forysta verkalýðshreyfingarinnar hefur hafnað slíkum tillögum. 


Tengdar fréttir

Komi ekki til greina að henda hag­vaxtar­aukum út um gluggann

Forseti ASÍ segir ekki koma til greina að hagvaxtaraukar, sem samið var um í lífskjarasamningunum, verði felldir úr gildi. Seðlabankastjóri sagði fyrr í dag að hagvaxtaraukarnir væru óheppilegir fyrir verðbólguþróunina. 

Enginn sá fyrir hagvaxtarauka á svona tímum

Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands segir að enginn hafi séð fyrir þann gríðarlega samdrátt sem varð í hagkerfinu eða hagvaxtarskotið sem fylgdi á samningstíma Lífskjarasamningsins. Þó hefði verið skynsamlegra að hagvaxtartenging launa hefði miðast við raunverulega aukningu landsframleiðslu yfir allan samningstímann, en ekki milli ára.

Hagvaxtarauki kemur fyrirtækjum spánskt fyrir sjónir

Hagvaxtarauki lífskjarasamninganna, sem kveður á um launahækkun vegna hagvaxtar þessa árs og tekur gildi frá maí á næsta ári, skýtur skökku við að mati, viðmælenda Innherja í veitinga- og smásölugeiranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×