Fótbolti

Birkir kom inn af bekknum og tryggði Demirspor sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Birkir Bjarnason skoraði sigurmark Adana Demirspor í dag.
Birkir Bjarnason skoraði sigurmark Adana Demirspor í dag. Getty/Matthew Pearce

Birkir Bjarnason reyndist hetja Adana Demirspor þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri gegn Basaksehir í tyrknesku úrvalsdieldinni í fótbolta í dag.

Tayyib Sanuc kom heimamönnum í Demirspor í forystu stuttu fyrir hálfleik, en Danijel Aleksic jafnaði metin snemma í síðari hálfleik.

Þegar Adana Demirspor vantar að láta losa sig úr vandræðum þá er oft gott að geta kallað á tvímenningana Birkir Bjarnason og Mario Balotelli af varamannabekknum.

Það er nákvæmlega það sem var gert eftir rúmlega klukkutíma leik, og á 81. mínútu reyndist Birkir Bjarnason hetja heimamanna þegar hann tryggði liðinu 2-1 sigur.

Birkir og félagar sitja í fjórða sæti deildarinnar með 48 stig eftir 30 leiki, einu stigi meira en Basaksehir sem situr sæti neðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×