Fyrrverandi forsætisráðherrann handtekinn Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2022 10:43 Hinn 62 ára Boyko Borissov gegndi embætti forsætisráðherra í Búlgaríu á árunum 2009 til 2013 og aftur frá 2014 til 2021. EPA Lögregla í Búlgaríu handtók í gær forsætisráðherrann fyrrverandi, Boyko Borissov, í tengslum við rannsókn á fjármálamisferli. Rannsóknin snýr að því hvort að styrkir frá Evrópusambandinu hafi verið misnotaðir.
DW segir frá því að lögregla í Búlgaríu hafi handtekið fjölda manns í tengslum við rannsóknina sem snýr að 120 færslum sem tengjast styrkjum frá ESB til Búlgaríu. Borissov var handtekinn í gær en rannsóknin er á vegum skrifstofu saksóknara Evrópusambandsins í Búlgaríu. Í tilkynningu frá innanríkisráðuneyti Búlgaríu segir að Borisov verði í varðhaldi í sólarhring, en ekkert er þar gefið upp um mögulega ákæru. Saksóknarar hafa verið að rannsaka misnotkun á styrkjum ESB til Búlgaríu á sviði landbúnaðar og innviðauppbyggingar og vegna kórónuveirufaraldursins. Forsætisráðherrann Kiril Petkov sagði í færslu á Facebook-síðu sinni að enginn væri hafinn yfir lög, eftir að fréttir bárust af handtökunni. Petkov myndaði ríkisstjórn í kjölfar sigurs í þingkosningunum í Búlgaríu í nóvember síðastliðinn, en í kosningabaráttunni hét hann því að berjast hart gegn spillingu í landinu. Hinn 62 ára Borissov gegndi embætti forsætisráðherra í Búlgaríu á árunum 2009 til 2013 og aftur frá 2014 til 2021. Áður hafði hann gegnt embætti borgarstjóra höfuðborgarinnar Sofiu.
Búlgaría Evrópusambandið Mest lesið Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent „Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“ Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Fleiri fréttir Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Sjá meira