Hefur öðlast styrk, skilning og getu til þess að mæta tilfinningunum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. mars 2022 14:31 Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg stendur fyrir sýningunni Feelings served; table for one þar sem hún nálgast tilfinningar sínar óhrædd. Hrefna Björg/Aðsend Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar sýninguna „Feelings served; table for one“ í dag klukkan 17:00. Sýningin er haldin í Núllinu, listagalleríi neðanjarðar á Bankastræti 0. Undanfarna daga hefur Júlíanna verið í óða önn við að breyta hráu rýminu í undraheim en blaðamaður heyrði í henni hljóðið.
Opnunartímar sýningarinnar.Aðsend Júlíanna segir sýninguna fjalla um það að setjast niður með tilfinningum sínum og leggja þær allar upp á borðið. „Nánast eins og að maður myndi bjóða einhverjum í mat sem maður þyrfti að ræða um eitthvað mikilvægt við, þá er hér lagt á borð fyrir einn og öllum tilfinningunum boðið að vera með.“ Sú tilfinningaríkasta hingað til Listaverk Júlíönnu koma í ólíkum formum og mynda í sameiningu þessa tilfinningalegu heild. „Úr loftinu og yfir matarborðinu hanga fjölmörg tár, skúlptúrar og verk, og eru þau einskonar myndform þess að leyfa tilfinningunum að taka pláss, gefa þeim vægi og hlusta á þær en ekki að bæla þær niður.“ Tárin geta svo sannarlega verið öflug.Júlíanna Ósk Hafberg/Aðsend. Júlíanna hefur löngum verið þekkt fyrir tilfinningaríka list. „Tilfinningar og berskjöldun taka stórt pláss í viðfangsefnum og skilaboðum listarinnar minnar og er þessi sýning engin undantekning. Það mætti jafnvel segja að þessi sýning sé sú tilfinningaríkasta hingað til.“ Að stíga inn í annan heim Sýningin ber sem áður segir titilinn „Feelings served; table for one“ og er innsetning í rými með skúlptúrum og verkum hangandi úr loftinu, ásamt tveimur stórum málverkum. View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) „Ég lagði mikið upp úr því að umbreyta rýminu og búa til eins konar tilfinningu um að maður væri að stíga inn í annan heim, þannig smá töfrar liggja yfir öllu þar sem allt rýmið umlykur þig, þar með verkið og innsetningin líka. Þú gengur ekki bara inn í gallerí, þú gengur í raun beint inn í verkið sjálft. Mig hefur lengi langað til þess að gera innsetningu í rými og út frá því er ég mjög hrifin af því að búa til heildstæða upplifun og einhverskonar töfrandi heim fyrir áhorfandann. Skilaboðin og tilfinningin af verkinu sjálfu stigmagnast við það finnst mér.“ „Tárin fengu loks sitt sterkasta form“ Þessi listakona takmarkar sig ekki við eitt listform og er óhætt að feta nýjar slóðir. Hún hefur hér áður fyrr til dæmis smíðað sérstaka striga í einstökum formum, málað, hannað skartgripi, unnið með dönsurum og margt fleira. View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) „Í þessari sýningu er ég aðallega að fást við gler en ég er mikill brasari. Ég elska að læra nýja hluti, kynnast nýjum efniviðum og finna hluti sem ég hef ekki prófað áður og dýfa mér ofan í þá til að skilja, læra og geta. Tár hafa verið sterk táknmynd í mörgu af því sem ég hef gert undanfarin ár og það var eins og tárin fengju loks sitt sterkasta form þegar glerið kom inn í listsköpunina mína,“ segir Júlíanna. View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) Óvænt tenging við gamalt ljóð Listin býr yfir svo ótal mörgum ólíkum miðlum og oft getur verið erfitt að átta sig á því hvað tengist hverju. Tenging við ljóðlist kom óvænt að þessari sýningu en langt inn í sýningarferlið áttaði hún sig á því að innsetningin væri bein tilvitnun í ljóð sem hún sjálf skrifaði árið 2017. „Þetta er ljóðið sem mér þykir kannski mest vænt um en það er virkilega langt og lýsir því hvernig ég hafði bælt niður tilfinningar mínar með því að læsa þær inn í myrku herbergi innra með mér, þar sem tárin mín hanga eins og ljósakrónur úr loftinu á strengjum allra þeirra tilfinninga sem ég aldrei þorði að viðurkenna,“ segir Júlíanna og bætir við: „Ég gekk í gegnum erfiða tíma þegar þetta ljóð var skrifað og var þetta ár mikið umbreytingar ár fyrir mig þegar kemur að því að vinna úr tilfinningum sínum, gömlum sárum og skilja hvernig það hefur áhrif á allt líf mans að bera þau með sér. Það má því segja að þessi sýning sé áframhald af þessu ljóði þar sem ég hef öðlast styrk, skilning og getu til þess að mæta tilfinningunum, stíga inn í þetta dimma herbergi, leggja á borð og bjóða þeim í mat.“ View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) Listin umbreytingarafl Tilfinningar og andleg heilsa eru málefni sem hafa lengi verið hugleikin Júlíönnu og hefur hún því fjallað mikið um þau. „Mér finnst mikilvægt að opna umræðuna, gera þessa hluti sýnilegri og eðlilegri og hjálpa til við að eyða einhverskonar taboo-um sem enn gætu umlykið þessi málefni. Ég nota þannig mig og listina mína sem eins konar tækifæri til þess og trúi því að við getum verið umbreytingarafl með því að vera fyrirmyndir, berskjalda okkur og tala um hlutina.“ Eins og áður kemur fram hafa tárin verið einhvers konar einkenni fyrir Júlíönnu en hún hefur verið að gera eyrnalokka í tárformi frá árinu 2018. „Eyrnalokkarnir kallast Tears in my Ears og eru svipuð táknmynd og þessi sýning en tárin í eyrunum eru táknmynd þess að hengja tilfinningar sínar í eyrun fyrir alla til að sjá og fagna fegurðinni og styrknum í berskjölduninni og tilfinningum sínum,“ segir Júlíanna að lokum. Sýningin opnar í dag, miðvikudag milli klukkan 17-20 og er opin fram á sunnudag, 20. mars. Nánari upplýsingar má finna hér.
Myndlist Menning Tengdar fréttir „Fötin eiga að passa á okkur en ekki við í fötin“ Myndlistarkonan Júlíanna Ósk Hafberg er lausnamiðuð þegar það kemur að því að endurnýta föt og leggur áherslu á að laga flíkurnar sínar ef eitthvað kemur fyrir þær, frekar en að henda þeim. 6. febrúar 2022 12:01 Vill gera listina aðgengilegri með sýningum í heimahúsum Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar listasýningu í Gallerí Heima laugardaginn 4. desember og er þetta fyrsti viðburður í áhugaverðu ferli listakonunnar. 3. desember 2021 16:31 Mest lesið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn Lífið 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira
„Fötin eiga að passa á okkur en ekki við í fötin“ Myndlistarkonan Júlíanna Ósk Hafberg er lausnamiðuð þegar það kemur að því að endurnýta föt og leggur áherslu á að laga flíkurnar sínar ef eitthvað kemur fyrir þær, frekar en að henda þeim. 6. febrúar 2022 12:01
Vill gera listina aðgengilegri með sýningum í heimahúsum Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar listasýningu í Gallerí Heima laugardaginn 4. desember og er þetta fyrsti viðburður í áhugaverðu ferli listakonunnar. 3. desember 2021 16:31