Erlent

Starfs­maður rúss­neska ríkis­sjón­varpsins mót­mælti stríðinu í beinni út­sendingu

Eiður Þór Árnason skrifar
Ovsyannikova náði að koma skilaboðum sínum á framfæri á þessari aðalsjónvarpsstöð rússneskra yfirvalda áður en klippt var í burtu og hún fjarlægð.
Ovsyannikova náði að koma skilaboðum sínum á framfæri á þessari aðalsjónvarpsstöð rússneskra yfirvalda áður en klippt var í burtu og hún fjarlægð.

Kona truflaði fréttaútsendingu rússnesku ríkisstöðvarinnar Channel One Russia um klukkan 21:30 að staðartíma í kvöld til að mótmæla stríðinu í Úkraínu. Konan starfar hjá sjónvarpsstöðinni að sögn mannréttindalögfræðingsins Pavels Chikov og OVD-Info, sjálfstæðs mannréttindahóps sem vaktar mótmæli í Rússlandi. 

Í myndskeiði sem deilt hefur verið á samfélagsmiðlum sést Marina Ovsyannikova standa fyrir aftan fréttaþul hrópandi „nei við stríði“ og “stöðvum stríðið.“ Á skilti sem hún heldur á má lesa „Ekkert stríð. Stöðvum stríðið. Ekki trúa áróðrinum sem þau eru að ljúga að ykkur hér“ og er það undirritað „Rússar gegn stríðinu.“

Max Seddon, fréttamaður Financial Times í Moskvu, segir að Ovsyannikova sé komin á lögreglustöð og muni njóta aðstoðar málsvarnarsjóðs Pavels Chikov. Rússneska ríkisfréttastofan TASS greinir frá því að Channel One sé með málið til rannsóknar.

Í myndskeiði sem Ovsyannikova virðist hafa tekið upp í tengslum við atvikið segir hún stríðið í Úkraínu vera glæp sem sé einungis á ábyrgð Vladimirs Pútín Rússlandsforseta. Hún segir að faðir hennar sé úkraínskur og móðir rússnesk en þau hafi aldrei verið óvinir. Ovsyannikova biðst afsökunar á því að hafa starfað fyrir ríkisfréttastofuna þar sem hún hafi flutt áróður rússneskra stjórnvalda. Hún skammist sín fyrir að eiga þátt í því að stöðin hafi logið að landsmönnum.

„Við sögðum ekkert árið 2014 þegar þetta byrjaði. Við mótmæltum því ekki þegar ráðamenn í Kreml eitruðu fyrir Navalny. Við bara sátum og horfðum þögul á þessa ómanneskjulegu stjórnarhætti. Nú hefur allur heimurinn snúið baki við okkur og tíu kynslóðir afkomenda munu ekki hreinsa skömm þessa frændvígastríðs af sér.“

Innan við tveimur klukkustundum eftir að Ovsyannikova birtist á skjáum landsmanna höfðu yfir 4.600 manns skilið eftir athugasemdir á Facebook-síðu hennar og þakka margir henni fyrir hugrekkið.

Mannréttindalögfræðingurinn Pavel Chikov segir að Ovsyannikova hafi verið handtekin og sé komin í hendur innanríkisráðuneytisins.

Gerir hann ráð fyrir því að hún hafi verið ákærð fyrir brot á nýrri löggjöf sem er ætlað að koma í veg fyrir fólk komi óorði á aðgerðir rússneskra hermanna, dreifi „fölskum upplýsingum“ um rússneskar hersveitir eða kalli eftir að bundinn verði endi á hernaðaraðgerðir.

Fólk sem hlýtur dóm fyrir brot á lögunum getur átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×