Skoðun

Rigningin skolar snjónum í burtu en vandinn við stjórn borgarinnar er við­varandi

Helgi Áss Grétarsson skrifar

Það hefur verið snjóþungt í Reykjavík undanfarnar vikur, ekki síst í efri byggðum. Fátt á að koma óvart í þeim efnum enda Reykjavík nyrsta höfuðborg fullvalda ríkis í heimi. Allir vegfarendur hafa upplifað erfiðleika við að koma sér á milli staða, ökumenn, hjólreiðafólk og gangfarendur. Sem dæmi hefur staðan í fjölmörgum húsagötum borgarinnar verið sú að ökumenn upplifa sig sem lestarstjóra þar sem ökutækið leikur á reiðiskjálfi inn á brautarteinum. Höktandi fer bíllinn áfram á þeim brautarteinum þar sem gatan er mögulega auð en allt um kring eru háir snjóskaflar sem auka líkur á óhöppum, hvort sem um er að ræða meiðsli á fólki eða munatjóni.

Almennir starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktakar á vegum borgarinnar hafa sjálfsagt gert sitt ítrasta til að moka snjó og gera götur greiðfærar. Veruleikinn er hins vegar sá að mörkuð hefur verið pólitísk stefna þar sem grunnþjónusta sem þessi er ekki í forgangi. Svona hefur þetta ekki alltaf verið í Reykjavík og önnur sveitarfélög, svo sem eins og Akureyrarbær, tryggja að grunnþjónusta sem þessi sé í viðunandi horfi.

Hitinn og rigningin góða

Þar sem ég sit á 3ju hæð Suðurlandsbrautar 18 og horfi út á Esjurætur þá sést að hægt og sígandi er hitanum og rigningunni að takast að skola öllum snjósköflunum í burtu. Það er vel fyrir alla vegfarendur. Á hinn bóginn má ekki gleyma því að engin þörf var á að sveitarstjórnin í höfuðborginni léti þetta ástand viðgangast. Sveitarfélag á einfaldlega að tryggja að innviðir séu í lagi, götur séu greiðfærar og daglegt líf borgaranna gangi sem snurðulausast fyrir sig. Svo þegar vorar nefnilega þá sést í holótta vegi og biðin eftir því að þeir séu lagfærðir getur tekið langan tíma. Á sumrin eru göturnar oft og einatt ekki þrifnar og grasið vart slegið.

Grunnþjónustan þarf að vera í lagi

Að mínu mati á rekstur sveitarfélags að vera eins einfaldur og skýr og hægt er. Kerfið er fyrir fólkið, ekki öfugt. Fjármunir og orka starfsmanna á að fara í að leysa hagnýt viðfangsefni hvers dags. Auðvelda á almenningi að lifa lífinu. Á þeim grunni eflum við lífsgæðin í þeirri frábæru borg sem Reykjavík er. Til að koma henni á hærri stall þarf breytingar í Ráðhúsinu og það gerum við í kosningunum í vor.

Höfundur óskar eftir stuðningi í 5. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×