Menning

Gífurleg orka náttúrunnar færð yfir á strigann

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listakonan Guðrún Einarsdóttir á sýningu sinni Efnisland í NORR11. 
Listakonan Guðrún Einarsdóttir á sýningu sinni Efnisland í NORR11.  Ljósmyndari: Anna Kristín Óskarsdóttir/Aðsend

Listakonan Guðrún Einarsdóttir opnaði sýninguna Efnisland síðastliðinn laugardag en hún sækir einstakan myndheim sinn í myndanir og form í kraftmikilli náttúru Íslands. Sýningin, sem er á vegum Listvals, er staðsett í NORR11 á Hverfisgötu 18.

Óhefðbundnar myndanir og dýpt lita eru áberandi í verkum Guðrúnar.Ljósmyndari: Anna Kristín Óskarsdóttir/Aðsend

Súrrealískir karakterar

Verk Guðrúnar Einarsdóttur líkjast óneitanlega landslagsmálverki við fyrstu sýn. Þegar nær er komið sýna þau hins vegar súrrealískan karakter með óhefðbundnum myndunum og dýpt lita. Innan marka strigans birtist hin gífurlega orka náttúrunnar á einstakan hátt, þar sem efniviður málverksins, olían og bindi- og leysiefnin eru vakin upp. 

Verk Guðrúnar fá áhorfendur til að staldra við strigann.Ljósmyndari: Anna Kristín Óskarsdóttir/Aðsend

Innra líf þeirra og efnasambönd eru stýrð af listamanninum. Guðrún skapar þannig umgjörð fyrir lífrænt ferli sem svipar til náttúrunnar og fær áhorfandann til að nema staðar við strigann og virða fyrir sér efnislandslagið.

Meðal verka Guðrúnar á sýningunni Efnisland.Ljósmyndari: Anna Kristín Óskarsdóttir/Aðsend

Efnafræðin tengd listinni

Guðrún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á undanförnum tveimur áratugum ásamt því að hafa sýnt einkasýningar bæði hér heima og erlendis. Hún stundaði nám í málaradeild og fjöltæknideild Myndlistar- og Handíðaskóla Íslands á níunda áratugnum en ásamt því hefur hún tekið námskeið í efnafræði síðar á ferlinum. 

Listaverk Guðrúnar vinna vel með umhverfinu í NORR11.Ljósmyndari: Anna Kristín Óskarsdóttir/Aðsend

Það verður að segjast að efnafræðin og myndlistin myndi virkilega áhugaverða blöndu sem kemur fram á svo einstakan hátt í listsköpun Guðrúnar. Sýningin stendur til 11. apríl næstkomandi.


Tengdar fréttir

Beint úr iðrum hins kvenlæga veruleika

Gjörningaklúbburinn stendur fyrir sýningunni Seiglu í NORR11 á Hverfisgötu. Sýningin mun standa til fyrsta mars næstkomandi og er unnin í samvinnu við Listval. 

Listval opnaði sýningarrými í Hörpu

Listval opnaði sýningarrými í Hörpu á laugardag og var fullt í rýminu alla helgina. Rými Listvals er á fyrstu hæð og sjást því litrík og falleg listaverk vel út um gluggana framan  á Hörpu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.