Erlent

Versti dagur stríðsins hingað til

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kona í öngum sínum þegar hún sér ástandið á bakgarðinum eftir að rússneskt flugskeyti lenti þar.
Kona í öngum sínum þegar hún sér ástandið á bakgarðinum eftir að rússneskt flugskeyti lenti þar. AP Photo/Vadim Ghirda

Harðir bardagar hafa staðið yfir í allan dag í Kharkív, Mariupol og Kherson. Eldflaugum hefur rignt yfir borgirnar og stórskotalið herjað á þær. Rússar hafa bætt verulega í árásir á skotmörk í borgum sem ekki þjóna hernaðarlegum tilgangi. 

Flugskeyti féll til dæmis á ráðhúsið í Kharkív, sem hefur verið eitt helsta skotmark Rússa frá upphafi innrásarinnar. Íbúi í borginni náði myndbandi af augnablikinu sem flugskeytið lenti á ráðhúsinu þar sem sjá má að mikil eyðilegging varð. 

Fregnir hafa þá borist af miklu mannfalli almennra borgara í stórskotaliðsárásum Rússa á Kharkív og Mariupol, sem setið er um. Igor Terekhov, borgarstjóri Kharkív, sagði fyrr í dag að Rússar skytu eldflaugum á borgina í massavís og að önnur eins eyðilegging hafi ekki sést frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. 

Þá hæfði eldflaug skóla í Kharkív í morgun. Borgin er talin umkringd af rússneskum hermönnum en hún er enn undir stjórn Úkraínumanna. 

Á þriðja tug fallnir í Kharkív

Minnst fjórir féllu og níu særðust í loftárás Rússa á Kharkív í morgun. Terekhov greindi frá þessu í myndbandsávarpi sem hann birti á samfélagsmiðlum. 

„Kharkív er rússneskumæladi borg. Einn af hverjum fjórum íbúum á ættingja í Rússlandi. En afstaða borgarbúa til Rússlands í dag er allt önnur en hún var áður. Við bjuggumst aldrei við því að þetta myndi gerast: Alger eyðilegging, tortíming, þjóðarmorð á úkraínsku þjóðinni. Þetta er ófyrirgefanlegt,“ sagði Terekhov. 

Oleh Sinehubov, ríkisstjóri Kharkív, greindi þá frá því í morgun að 21 hafi fallið og 112 særst í árásum Rússa á Kharkív. Þá staðfesti hann að árás hafi veirð gerð á hersjúkrahús í borginni. Þetta sagði hann áður en loftárásin var gerð á ráðhús borgarinnar í morgun. 

Stofnandi Conflict News hefur verið að fylgjast með samfélagsmiðlum ytra í morgun og segir hann myndefnið frá Kharkív vera hræðilegt.

Ráðamönnum Konotop settir afarkostir

Ráðamenn í Mariupol hafa sagt sprengjuárásirnar á borgina vera linnulausar. Þær hafi gengið á í rúmar fimmtán klukkustundir án hléa. Blaðamaður BBC hefur eftir ráðamönnum borgarinnar að margar árásir hafi beinst að íbúðahverfum. 

Borgarstjóri Konotop, í austurhluta Sumy-héraðs, sagði íbúum borgarinnar í dag að bænum hefðu borist afarkostir frá hersveitum Rússa sem umkringja borgina. 

„Ef við streitumst á móti, ætla þeir að þurrka út bæinn með stórskotaliði,“ sagði Artem Semenikhin við íbúa í dag.

„Ef þið eruð til í það, þá berjumst við. Hverjir vilja berjast?“ spurði hann við mikil öskur íbúa sem samþykktu mótspyrnu, samkvæmt Guardian.

Fyrr í dag barst myndefni af hermönnum við ráðhús Konotop þar sem þeir mættu til að afhenda borgarstjóranum áðurnefnda afarkosti. Hermennirnir voru umkringdir af íbúum sem voru það reiðir að einn hermannanna hélt tveimur handsprengjum á lofti svo íbúarnir réðust ekki á þá.

Aðför Rússa muni aðeins versna

Ben Wallace, varnarmálaráðherra Breta, sagðist í morgun gera ráð fyrir að innrás Rússa í Úkraínu eigi eftir að verða grimmilegri eftir því sem á líður. Hann sagði í samtali við útvarpsstöðina LBC að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði ekki fengið sínu framgengt og hefði brugðist við með því að umkringja borgir og ráðast gegn þeim á næturnar. Hann myndi að lokum freista þess að brjóta alla andspyrnu á bak aftur og ráðast inn í borgirnar.

Þá muni Rússar að hans mati eiga erfitt með að hernema Úkraínu. Bæði vegna stærðar landsins og fjölda landsmanna, sem muni veita harða mótspyrnu. Það er þá sem mannfallið mun fara að taka sinn toll, segir Wallace.

Rússar segjast ekki hafa í hyggju að hernema Úkraínu, heldur koma fasískum öflum frá. Hins vegar er óljóst hvernig þeir sjá framhaldið fyrir sér, þar sem Úkraínumenn eru alfarið á móti afskiptum Rússa og líklegir til að velja sér nýja ráðamenn þegar innrásarherinn er á brott.

Dagurinn í Kænugarði rólegur

Fréttastofa ræddi þá við Óskar Hallgrímsson ljósmyndara og íbúa í Kænugarði í morgun. Hann sagði ekki skrítið að Kharkív sætti árásum enda sé borgin skammt frá landamærnum og jafnvel hægt að skjóta á hana frá Rússlandi. 

Óskar bendir á að það sé ekki skrýtið að Karkív sæti árásum, enda sé borgin skammt frá landamærunum og jafnvel hægt að skjóta á hana frá Rússlandi.

Síðasti sólarhringur hafi þó verið rólegur í Kænugarði fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar. 


Tengdar fréttir

Ál- og gasverð í hæstu hæðum

Miklar hækkanir hafa orðið á eldsneytismörkuðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu og refsiaðgerða gegn Rússlandi. Tunnan af hráolíu kostar nú meira en 110 Bandaríkjadali og hefur verð jarðgass hefur aldrei verið hærra í Evrópu.

Blaðamannafélagið safnar fyrir úkraínska blaðamenn

Blaðamannafélag Íslands hefur hafið fjársöfnun til stuðnings blaðamönnum í Úkraínu. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að mikilvægi fjölmiðla á stríðstímum sé óumdeilt og blaðamenn í Úkraínu þurfi aðstoð til að geta stuðlað að öryggi sínu á meðan þeir miðli til umheimsins fréttum af ástandinu í kjölfar innrásar Rússa. 

Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa

Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×