Innlent

Bein útsending: Opinn fundur Félags kvenna í sjávarútvegi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Opinn fundur Félags kvenna í sjávarútvegi er í beinni útsendingu hér á Vísi. 
Opinn fundur Félags kvenna í sjávarútvegi er í beinni útsendingu hér á Vísi.  Vísir/Vilhelm

Opinn fundur um fjölbreytileika, fjárfestingar og framtíðina í sjávarútvegi fer fram í höfuðstöðvum Íslandsbanka í dag. Fundurinn hefst klukkan 9 og stendur yfir til 10:30 og verður streymt í beinni útsendingu hér á Vísi. 

Fundurinn er boðaður til þess að kynna niðurstöður rannsóknar sem að samtök Kvenna í sjávarútvegi létu gera nýverið. Markmið könnunarinnar er að kortleggja stöðu kvenna í greininni og safna tölulegum upplýsingum um konur og kanna viðhorf til þeirra innan greinarinnar. 

Rannsóknin var send á æðstu stjórnendur um 500 fyrirtækja í sjávarútvegi og tengdum greinum, en sambærileg rannsókn var gerð á vegum samtakanna árið 2017 og verða niðurstöðurnar bornar saman við hana. 

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun flytja opnunarávarp og í framhaldinu mun Agnes Guðmundsdóttir, formaður KIS, kynna niðurstöðurnar. Íslandssjóðir munu svo kynna nýjan sjóð með áherslu á fjárfestingar í haftengdri starfsemi sem verður settur á laggirnar fljótlega, en honum er meðal annars ætlað að styðja við vöxt í víðu mengi sjávarútvegs og hliðargreinum hans. 

Fleiri áhugaverð erindi verða einnig flutt ásamt pallborðsumræðum undir stjórn Eddu Hermannsdóttur. Sjá nánari dagskrá hér fyrir neðan.

Dagskrá:

  • Svandís Svavarsdóttir – Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra
  • Agnes Guðmundsdóttir – Formaður félags Kvenna í sjávarútvegi
  • Jón Bjarki Bentsson – Aðalhagfræðingur Íslandsbanka
  • Árni Oddur Þórðarson – Forstjóri Marels
  • Kjartan Smári Höskuldsson – Framkvæmdastjóri Íslandssjóða

Pallborðsumræður undir stjórn Eddu Hermannsdóttur

  • Ásta Dís Óladóttir – Dósent við Háskóla Íslands
  • Erla Ósk Pétursdóttir – Framkvæmdastjóri Marine Collagen
  • Elliði Vignisson – Bæjarstjóri Ölfuss
  • Guðmundur Kristjánsson – Forstjóri Brims

Hægt er að horfa á fundinn í spilaranum hér að neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×