Viðskipti innlent

Nýtt íslenskt flugfélag fer í jómfrúarferð í júní

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Flugfélagið Niceair mun fljúga frá Akureyri til útlanda.
Flugfélagið Niceair mun fljúga frá Akureyri til útlanda. Niceair

Stofnað hefur verið félag um millilandaflug um Akureyri og áætlað er að farið verði í jómfrúarflugið 2. júní næstkomandi. Félagið heitir Niceair og mun sinna vaxandi markaði á svæðinu fyrir heimamenn og erlenda ferðamenn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu nýja en þar segir að nafnið Niceair vísi til norður Íslands, það er North Iceland. Til að byrja með verði flogið til Bretlands, Danmerkur og Spánar og sala hefjist á næstu vikum. 

Flugfélagið hefur fest sér Airbus A319 flugvél með 150 sætum. Þessi tegund flugvéla er langdræg og er sögð henta vel til aðstæðna á Akureyri auk þess sem fraktrýmið sé gott. 

Fram kemur í tilkynningunni að forsendur fyrir flugi til og frá Akureyri hafi breyst verulega á undanförnum árum og að stofnun félagsins byggi á tveggja ára rannsóknarvinnu í samstarfi við innlenda og erlenda aðila. 

„Ætlun félagsins er að festa í sessi áætlunarflug allt árið á erlenda áfangastaði frá Akureyrarflugvelli. Þetta mun í senn bæta lífsskilyrði einstaklinga á svæðinu, bæta aðgengi erlendra ferðamanna að Norðurlandi og síðast en ekki síst stóreykst samkeppnishæfi fyrirtækja á svæðinu,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Niceair í tilkynningunni.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Niceair.Niceair

Þar segir að til að byrja með verði flugrekstrarleyfið í höndum evrópsks flugrekanda, sem ekki er nafngreindur í tilkynningunni. Á Akureyri muni um tuttugu störf skapast en áhafnir félagsins verði bæði íslenskar og erlendar. Launakjör verði sambærileg þeim sem tíðkist á íslenskum vinnumarkaði. 

Almenningi boðið að kaupa hlut á næstu misserum

Meðal hluthafa í félaginu er fjöldi fyrirtækja af Norðurlandi, þar á meðal KEA, Höldur, Kaldbakur, Norlandair, Armar, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Norðurböð, brugghúsið Kaldi, kælismiðjan Frost og Finnur ehf. Enginn hluthafa sé áberandi stór og enginn eigi yfir 8% í félaginu. 

„Á næstu misserum verður almenningi og fyrirtækjum boðið að eignast hlutdeild í félaginu,“ segir Þorvaldur Lúðvík.

Stefnan sé sett á áætlunarflug allt árið um kring sem þjóna muni farþegum bæði á Norðurlandi og Austurlandi, sem nú muni ekki þurfa að ferðast alla leið til Keflavíkur til að komast út fyrir landsteinana. 

Áfangastaðir verða kynntir á næstu vikum og mun sala hefjast strax í kjölfarið á heimasíðu félagsins. Bókunarvél Niceair verður tengd Dohop og öðrum bókunarvélum sem einfalda muni farþegum félagsins að bóka sig beint á milli Akureyrar og áfangastaða erlendis um tengivelli félagsins í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×