Viðskipti innlent

Bjarni fellst á til­lögu um sölu frekari eignar­hluta í Ís­lands­banka

Eiður Þór Árnason skrifar
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu frekari eignarhluta í Íslandsbanka. Tillagan felur í sér að Bankasýslan fái heimild til að selja alla eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka í nokkrum áföngum og að höfðu samráði við ráðherrann.

Fellst fjármálaráðherra á að stofnunin hefji undirbúning hið fyrsta að framhaldi á sölumeðferð á eftirstandandi 65% eignarhlutum ríkisins í bankanum innan næstu tveggja ára, háð því að markaðsaðstæður séu hagfelldar.

Telur Bjarni nú skynsamlegt að halda áfram sölumeðferð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Greinargerð og fylgigögn um áformin hafa verið send fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.

Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að óskað hafi verið eftir formlegri umsögn frá Seðlabanka Íslands um jafnræði bjóðenda, líkleg áhrif sölu á gjaldeyrismarkað, gjaldeyrisforða og laust fé í umferð. Eftir að umsagnir nefnda Alþingis og Seðlabanka Íslands liggja fyrir verður tekin endanleg ákvörðun um hvort sölumeðferð eignarhlutarins verði hafin í samræmi við efni greinargerðarinnar fjármálaráðherra.

„Með skráningu bankans á skipulegan verðbréfamarkað og sölu hlutabréfa á honum er áherslum um opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni í lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum mætt með sem ákjósanlegustum hætti,“ segir í greinargerð vegna framhalds á sölu á hlutum ríkisins á Íslandsbanka.

Leggja til að salan verði tekin í nokkrum áföngum

Bankasýsla ríkisins horfir til þess að selja eignarhluti ríkisins með blöndu af tilboðsfyrirkomulagi og miðlunaráætlun. Fram kemur í greinargerðinni að fyrri aðferðin felist í útboði til hæfra fjárfesta, en sú síðari í því að verðbréfafyrirtæki fái fyrirmæli um að selja ákveðinn hluta fjölda hluta yfir visst tímabil, háð framboði og eftirspurn hverju sinni.

„Umfang áætlaðrar sölu er mikið miðað við stærð útboða í Kauphöll Íslands. Þess vegna er horft til þess að salan á öllum eftirstandandi 65% eignarhlut ríkisins í bankanum verði í nokkrum áföngum yfir allt að tveggja ára tímabil. Nákvæm tímasetning og fjárhæð einstakra söluáfanga mun því taka mið af ytri aðstæðum eins og sveiflum í hagkerfinu, stöðu fjármálamarkaða, hlutabréfamarkaða og þróun heimsmála almennt.

Því er mikilvægt að í sölumeðferðinni ríki viss sveigjanleiki við ákvörðun um einstaka söluáfanga. Miðað við fyrrgreint er horft til þess að hægt verði að ljúka við sölu á eftirstandandi eignarhlutum ríkisins í Íslandsbankahlutabréfanna á markaði fyrir árslok 2023,“ segir jafnframt í greinargerð fjármálaráðherra.

Gætu fengið um 160 milljarða fyrir hlutinn

Dagslokagengi hlutabréfa Íslandsbanka þann 1. febrúar var 123 og var heildar markaðsvirði hlutabréfa í bankanum þá um 246 milljarða króna. Samkvæmt því var virði 65% eignarhlutar ríkisins þá um 160 milljarðar króna. Ef miðað er við sölu á 25% hlut í fyrsta áfanga væri markaðsvirði hlutarins um 61,5 milljarðar króna. Dagslokagengi Íslandsbanka var 126,4 krónur í gær og hefur farið hækkandi. 

Ríkið seldi 35% hlut fyrir 55,3 milljarða í frumútboðinu á síðasta ári þegar fyrsta skrefið var tekið í sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka. Í kjölfarið voru hlutarnir teknir til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallar Íslands þann 22. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×