Fótbolti

Lukaku skaut Chelsea í úrslit HM

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Romelu Lukaku skoraði eina mark leiksins og tryggði Chelsea sæti í úrslitum Heimsmeistaramóts félagsliða.
Romelu Lukaku skoraði eina mark leiksins og tryggði Chelsea sæti í úrslitum Heimsmeistaramóts félagsliða. Matthew Ashton - AMA/Getty Images

Enska knattspyrnufélagið Chelsea er komið í úrslitaleik Heimsmeistaramóts félagsliða eftir 1-0 sigur gegn Al-Hilal frá Sádi-Arabíu í kvöld.

Leikið var í tæplega tuttugu stiga hita á Mohammed Bin Zayed-vellinum í Abú Dabí. Evrópumeistarar Chelsea voru meira með boltann og það skilaði þeim marki eftir rúmlega hálftíma leik, en þar var að verki balgíski framherjinn Romelu Lukaku.

Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiskins og staðan var því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Lundúnaliðið var sterkari aðilinn í upphafi síðari hálfleiks, en náði ekki að bæta við marki. Andstæðingar þeirra í Al-Hilal fengu nokkur ágætis færi til að finna jöfnunarmark, en allt kom fyrir ekki og niðurstaðan varð 1-0 sigur Chelsea.

Chelsea er því á leið í úrslitaleik Heimsmeistaramóts félagsliða þar sem liðið mætir brasilíska liðinu Palmeiras á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×