Lífið

Euphoria æði á samfélagsmiðlum

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Euphoria æði virðist hafa gripið um sig á samfélagsmiðlum.
Euphoria æði virðist hafa gripið um sig á samfélagsmiðlum. Getty/ Jeff Kravitz

Þættirnir Euphoria hafa vakið mikla athygli frá því að fyrsta serían kom út en eftir að önnur serían kom virðast þættirnir vera að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum. Áhorf þáttanna tvöfaldaðist frá fyrstu til annarrar seríu og förðunin og tískan í þáttunum hefur farið eins og stormsveipur um netheimana.

Samfélagsmiðlastjörnur keppast um að endurskapa förðun og útlit persónanna úr þáttunum og unglingar grínast með það að fara klædd í skólann eins og fólkið í þáttunum.

Þættirnir eru um hóp ungmenna sem eru að upplifa ástina, samfélagsmiðla og peninga en eiga einnig við fíkniefnaog heilsu vandamál að stríða. Nýlega var staðfest að HBO þættirnir munu fá aðra seríu og verður það sú þriðja.

Zendaya hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn í þáttunum þar sem hún fer með hlutverk Rue og hlaut hún meðal annars Emmy verðlaun fyrir frammistöðu sína í fyrstu seríunni. Fleiri stjörnur sem hafa komið fram í gegnum þættina eru Sydney Sweeney og Jacob Elordi. 

Það er hægt að sjá Jacob í The Kissing Booth bíómyndunum og hana meðal annars í The White Lotus og The Handmaid's Tale. Jacob og Zendaya voru par í raunheiminum þegar þættirnir fóru fyrst í loftið en eru ekki lengur saman í dag.

Hunter Schafer, Zendaya, og Dominic Fike.Getty/ Jeff Kravitz

Leikararnir Hunter Schafer og Dominic Fike hafa einnig verið mikið í sviðsljósinu því aðdáendur þeirra voru lengi sannfærðir um að þau ættu í ástarsambandi sem þau staðfestu á dögunum.

Þau staðfestu sambandið á Instagram Story.Skjáskot/Instagram

Tengdar fréttir

Tom Holland og Zendaya kaupa sitt fyrsta heimili saman

Uppáhalds Hollywood parið þessa dagana þau Tom Holland og Zendaya voru að kaupa sér hús saman í London. Húsið kostaði þau 3 milljónir punda eða 510 milljónir íslenkra króna og er er í suð-vestur hluta London.

Förðunartrendin sem hafa slegið í gegn á TikTok

TikTok er heitasti miðillinn í dag til að færa okkur nýjustu trendin beint í lófann, segja Heiður Ósk og Ingunn Sig, eigendur Reykjavík Makeup School. Í hlaðvarpsþættinum HI beauty fóru þær yfir þau förðunar og hár trend sem hafa gert allt vitlaust á TikTok.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.