Viðskipti erlent

Jurta­olíur hækka mest í verði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Mjólkurvöruverð hefur hækkað um 2,4 prósent frá því í desember.
Mjólkurvöruverð hefur hækkað um 2,4 prósent frá því í desember. Vísir/Vilhelm

Verð jurtaolía hefur hækkað um 4,2% frá því í desember en matvöruverð hefur ekki verið hærra í nær tíu ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um matvælaverð á heimsvísu. 

Hækkandi matvælaverð hefur víða verið einn þeirra þátta sem valdið hefur verðbólgu að undanförnu á sama tíma og mörg ríki reyna að koma efnahagsmálum aftur í fyrra horf. 

Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ varar nú við því að hækkandi matvælakostnaður muni bitna sérstaklega á fátækasta hópi samfélagsins í ríkjum sem stóli mikið á innflutt matvæli, sem Ísland til dæmis gerir. 

Jurtaolíur hafa hækkað mest í verði, eða um 4,2 prósent á einum mánuði, frá því í desember 2021. Rekja má þessa hækkun að miklu leiti til raskana á flutningaleiðum, skorts á vinnuafli og óhentugs veðurfars. 

Þá hefur mjólkurverð hækkað um 2,4 prósent, en mjólkurverð hefur hækkað undanfarna fimm mánuði, og mest hækkun er á verði á mjólkurdufti og smjöri. 

Minnst hækkun er í flokki korna, en verð þeirra hækkar um 0,1 prósent, þó sum hækki meiri en önnur. Til að mynda hefur maísverð hækkað um 3,8 prósent frá því í desember. Það má rekja til uppskerubrests vegna þurrka í Suður-Ameríku. 

Hveiti lækkar þó í verði, um 3,1 prósent, þar sem gríðarleg hveitiuppskera var í Ástralíu og Argentínu. Verð á kjöti hefur sömuleiðis hækkað  en sykurverð lækkaði um 3,1 prósent á milli desember og janúar, að stórum hluta vegna góðrar sykuruppskeru í Indlandi og Taílandi.

Í fyrri útgáfu fréttarinnar sagði að hækkunin væri á milli janúarmánaða 2021 og 2022 en hækkunin er á milli mánaðanna desember 2021 og janúar 2022. Þetta hefur nú verið leiðrétt. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×