Tónlist

Hugmyndin kviknaði í heimsókn í kvennafangelsi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Bubbi Morthens og Bríet syngja saman í laginu Ástrós. 
Bubbi Morthens og Bríet syngja saman í laginu Ástrós. 

Bubbi Morthens og Bríet náðu, eins og oft áður, til ótalmargra hlustenda þegar lagið Ástrós kom út í mars mánuði ársins 2021.

Nú er komið að því að velja lag ársins fyrir Hlustendaverðlaunin 2022 sem fara fram 19. mars næstkomandi. Útvarpsstöðvarnar FM957, Bylgjan og X 977 standa saman að þessari verðlaunahátíð og í flokknum Lag Ársins koma sjö lög til greina. Lífið á Vísi setti sig í samband við tónlistarfólkið á bak við þessa hittara og fékk að heyra söguna á bak við lagið.

Næsta lag sem við kynnum til leiks er lagið Ástrós sem Bubbi Morthens samdi og syngur ásamt Bríeti. Blaðamaður fékk þau til að svara nokkrum spurningum.

Hvernig kviknaði hugmyndin að laginu og hvaðan kom innblásturinn?

Bubbi Morthens: Hugmyndin að laginu kom í kringum 1982/3 þegar ég fékk beiðni um að koma í kvennafangelsið að spila, en ég var þá byrjaður að spila á Litla Hrauni. Þetta var þá nýtt fangelsi og ég spilaði fyrir fanga konur. Síðan hefur þetta í rauninni verið að malla í mér öll þessi ár.

Það var líka punktur í þessu lagi sem var frá bíómynd sem ég sá þegar ég var fjórtán ára sem heitir They Shoot Horses Don’t They með Jane Fonda í aðalhlutverki og þaðan kviknaði þessi hugmynd að ég gæti notað þetta einhvern tíma seinna meir.

Hvernig gekk ferlið og hvernig varð lagið að veruleika?

Bubbi Morthens: Svo varð það bara covidið og heimilisofbeldi og ofbeldi gagnvart konum sem varð kveikjan að laginu. Það kom frétt í sjónvarpinu og ég stökk inn í bílskúr og samdi þetta lag og spilaði það svo fyrir konuna mína Hrafnhildi. Hún sagði „Þetta lag verður hittari“, en ég hélt að það væri nú ekki líklegt að lag geti orðið hittari sem fjallar um konu sem er að verja börnin sín og sig og drepur manninn sinn. En þannig fór það nú.

Síðan er ég búinn að þekkja Bríeti síðan hún fæddist nánast þannig að ég hafði hana strax í huga með seinasta erindi. Svo fékk ég Bríeti til að koma og syngja þetta seinasta erindi sem hún gerði alveg frábærlega. Ég hitti GDRN líka, við vorum saman á fundi og ég spurði Guðrúnu hvort hún vildi koma með og setja raddir á. Sem að hún og gerði. Guðmundur Óskar útsetti lagið með mér og við unnum það svolítið í ferlinu sem var þegar við vorum að gera plötuna.

Bríet: Ég fæ símtal frá Bubba og hann vill að ég syngi á lag sem hann er með. Ég hlusta á það og var til í að prófa en vissi ekki alveg hvert þetta myndi fara.

Þetta ferli var skemmtilegt og var svo rosa fljótt að gerast. Við tókum einhvern klukkutíma í að taka upp og allir voru mjög professional. Svo fer ég aftur upp í stúdíó síðar og klára að taka upp því ég var ekki nógu sátt með vocal tökurnar hjá mér. Á þeim tíma eigum við Bubbi rosa fallegt spjall þar sem við töluðum um sálarlífið og áföll og allt þetta. Ég og hann eigum sterka tengingu, erum búin að þekkjast síðan ég man eftir mér og hann er búinn fylgjast með mér fullorðnast. Það var gaman að fá að vera partur af þessu lagi og mér þykir mjög vænt um þetta session, sem var lærdómsríkt og hlýlegt.

Áttir þú von á því að lagið myndi ná svona vel til hlustenda?

Bubbi Morthens: Það skiptir máli að þú hafir eitthvað að segja og það skiptir máli að þú getir sett hlutina líka þannig fram að það snerti fólk, og ég held að þetta lag hafi erindi, eins og svo mörg lög sem ég hef gert sem að fjalla um hluti sem aðrir tala ekki um. En nei, ég átti ekki von á því að svona lag með svona umfjöllunarefni yrði svona stórt, engan veginn.

Bríet: Við töluðum sérstaklega um það að þetta lag myndi ekki verða stórt af því þetta væri bara þannig sett upp, með langt intro og svona, og vorum bæði mjög meðvituð um að lagið yrði ekki hittari. En svo er lífið alltaf að koma manni á óvart og það var fallegt að sjá þetta lag verða að því sem það varð og ég held að ástæðan fyrir því sé af því við vorum að syngja frá hjartanu og erum segja mjög mikilvæga sögu, og við tengjum. Þannig að það var óvænt ánægja að þetta lag hafi verið stórt!



Kosning fyrir Hlustendaverðlaunin er nú í fullum gangi og geta hlustendur kosið það sem þeim þótti standa upp úr hér


Tengdar fréttir

Sleppti þessu út í kosmósinn og vonaði það besta

Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson sendi frá sér lagið Segðu Mér í janúarmánuði ársins 2021. Lagið var með vinsælli lögum ársins en það er einnig að finna á nýútgefinni plötu Friðriks Dórs Dætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.