Blóðbirgðir komnar niður fyrir öryggismörk í Blóðbankanum Eiður Þór Árnason og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 31. janúar 2022 17:28 Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans. Síðustu þrír mánuðir hafa verið erfiðir hjá Blóðbankanum og eru öryggisbirgðir blóðs nú undir viðmiðunarmörkum. Hlutfallslega færri konur gefa blóð hérlendis en í nágrannalöndunum og telur bankinn þar leynast mikilvægt sóknarfæri til framtíðar.
Sveinn Guðmundsson yfirlæknir Blóðbankans segir að mikið hafi borið á forföllum blóðgjafa eftir að kórónuveirusmituðum fór að fjölga í nóvember. „Við höfum hingað til alltaf getað tryggt blóð þegar þess er þörf en þetta snýst um að eiga öryggisbirgðir sem við viljum gjarnan að séu um 400 einingar af rauðkornum. Við eigum núna rúmlega 300 og höfum annars verið að dansa í kringum 350 til 400.“ Öryggisbirgðunum sé ætlað að tryggja að hægt sé að bregðast örugglega við stórslysi eða öðrum óvæntum atburðum. „Ef það kemur upp stórt slys eða mikil og stór aðgerð þá höfum við reynslu af því að einn sjúklingur getur þurft 100 til 200 blóðhluta á einum sólarhring. Þá höfum við yfirleitt kallað inn blóðgjafa í miklum mæli en möguleikar okkar til að safna miklu á skömmum tíma er minni út af faraldrinum, bæði vegna starfsfólks og blóðgjafa. Ef við eigum meiri öryggisbirgðir þá erum við örugg í gegnum fyrstu einn til tvo sólarhringanna,“ segir Sveinn. Ekki fengið að nota Blóðbílinn Sveinn segir að blóðbankar víða um heim séu í sömu stöðu og Rauði krossinn í Bandaríkjunum hafi til að mynda ekki staðið frammi fyrir meiri blóðskorti í tíu til tuttugu ár. Hann bætir við að það hafi haft mikil áhrif á starfsemina hér að geta ekki ekki starfrækt Blóðbankabílinn í tvö ár sem hafi verið öflugasta leiðin til að afla nýrra blóðgjafa. „Þetta byrjaði eiginlega í nóvember, þá eykst blóðhlutanotkun af einhverjum ástæðum sem við höfum ekki beint yfirlit yfir en teljum að það sé ekki tengt Covid. Svo minnkar aðgengi okkar að blóðgjöfum vegna fjarvista, veikinda og annara þátta og svo kannski vegna þess að við höfum ekki getað endurnýjað blóðgjafahópinn með sama hætti og áður með Blóðbankabílnum. Svo eru ýmsar byggðir sem við náum ekki eins vel til í dag, við fórum til dæmis á Suðurnesin og Akranes með reglulegu millibili og þar eru um það bil 1.000 einingar sem söfnuðust á hverju ári. Við erum ekki alveg viss um að allir þeir gjafar hafi komið hingað til Reykjavíkur til að gefa en sumir hafa gert það.“ Blóðbankinn segir framlag blóðgjafa vera mikilvægt fyrir heilbrigðiskerfið.Vísir/Vilhelm Hvetja konur til að mæta Áður en faraldurinn skall fyrir um tveimur árum var Blóðbankinn með um 6.000 virka blóðgjafa en þar af voru um 2.000 konur. Sveinn segir að á Norðurlöndunum, Bretlandi og Þýskalandi séu konur hins vegar um helmingur blóðgjafa. „Við teljum að íslenskar konur geti jafnvel gert enn betur og verið jafnokar kynsystrum sinna í löndunum í kringum okkur að gefa blóð.“ Sveinn segir að það sé áhyggjuefni að illa gangi að halda nægar öryggisbirgðir og bankinn hafi verið í nánum samskiptum við Landspítalann til að leita allra leiða til að minnka blóðnotkun og styrkja blóðsöfnunina til lengri tíma. „Framlag blóðgjafa á Íslandi er mikilvægt til að heilbrigðisþjónustan gangi og það hefur verið alveg ótrúlega gott að finna það hvað okkar blóðgjafahópur hefur brugðist vel við og með því móti tryggt öryggi sjúklinga í gegnum þennan erfiða faraldur. Þá er mér sérstaklega í huga hvað þetta hefur verið krefjandi síðustu þrjá mánuði.“
Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Blóðgjöf Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Fyrstu hundrað dagar ríkisstjórnarinnar og gervigreindaræði Efling ungmennastarfs í Breiðholti meðal aðgerða „Allt að því hroki eða yfirlæti“ að tala um reynsluleysi „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Skipar stýrihóp um áfengis- og vímuefnameðferð „Ég vil að þú sért alltaf með farða, annars sjást bólurnar þínar“ Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Björn hvergi af baki dottinn Sjór gekk yfir fjárhús í Vík og allt á floti Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Hveitibrauðsdögunum lokið: Ríkisstjórnin pólitískt stórtækari en von var á Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Segir ÍR að slökkva á skiltinu Ríkisstjórnin hefur starfað í hundrað daga og fjármálaáætlun kynnt Bein útsending: Gera upp fyrstu hundrað daga ríkisstjórnarinnar Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Grindvíkingar segjast vera Excel skjöl í ráðuneytum í Reykjavík Grænlandsheimsókn varaforseta og þrumuveður Þremur vísað út af Landspítalanum Stemningin farin ári fyrir stjórnarslitin Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Sjá meira