Innlent

Starfsfólk SÁÁ telur illa að sér vegið

Jakob Bjarnar skrifar
Einar Hermannsson formaður SÁÁ hér fyrir framan húsakynni samtakanna við Efstaleyti.
Einar Hermannsson formaður SÁÁ hér fyrir framan húsakynni samtakanna við Efstaleyti. vísir/vilhelm

Starfsfólk SÁÁ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að það telur með málsmeðferð Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegið að starfsheiðri, trúverðugleika og trausti starfsmanna sem og allri starfsemi SÁÁ.

Vísir hefur fjallað ítarlega um málið að undanförnu sem nú hefur ratað til héraðssaksóknara eftir umfjöllun eftirlitsdeildar SÍ. Þar er undir grunur um fjársvik SÁÁ með útgáfu tilhæfulausra reikninga. Og að greitt hafi verið fyrir þjónustu sem ekki er samningsbundin; að gerðir hafi verið mörg þúsund reikningar vegna fjarþjónustu en ekki voru fyrirliggjandi samningar um slík þjónustukaup.

Segja engan kostnaðarauka vegna aðgerða SÁÁ

Í yfirlýsingu starfsfólks SÁÁ, sem samtökin birtu á vefsíðu sinni, er hún sögð sett fram vegna alvarlegra ásakana um starfshætti við reikningsgerð til SÍ í heimsfaraldri. „Enginn kostnaðarauki ríkis varð til vegna aðgerða SÁÁ í göngudeild 2020,“ segir í upphafi tilkynningarinnar.

Þar mótmæla starfsmenn SÁÁ harkalega þeim ásökunum sem nú berast frá SÍ varðandi þjónustu sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar inntu af hendi á tímabilum þar sem ítrustu sóttvarna var krafist af yfirvöldum vegna heimsfaraldurs.

„Áfengis- og vímuefnaráðgjafar sinna árlega þúsundum einstaklinga í hópúrræðum í göngudeild. Slíkum hópúrræðum, óbólusettra skjólstæðinga, var ekki forsvaranlegt að halda úti í ströngustu samkomutakmörkunum vegna smithættu af Covid.

Í þeim tilgangi að halda meðferðarsambandi, styrkja bata og koma í veg fyrir bakslag á meðan á takmörkunum stóð, lögðu starfsmenn SÁÁ á sig mikla vinnu á stuttu tímabili við að hringja út í skjólstæðinga og veita þeim upplýsingar, ráðgjöf og stuðning.“

Vegið að starfsheiðri og trúverðugleika

Starfsmenn SÁÁ segjast ekki vita hvaðan á sig stendur veðrið.

„Er þessi vinna, sem unnin var af heilindum og í góðri trú, nú gerð tortryggileg og jafnvel saknæm. Það er rétt að halda því til haga, að enginn fjárhagslegur ávinningur fyrir SÁÁ eða starfsfólk samtakanna, umfram gildandi samninga, gat hlotist af þessari vinnu. Er með þeirri málsmeðferð SÍ gróflega vegið að starfsheiðri, trúverðugleika og trausti starfsmanna og starfsemi SÁÁ.“

Starfsfólkið segir að endingu að áfengis- og vímuefnaráðgjafar, og allir starfsmenn SÁÁ, muni nú sem áður setja hagsmuni skjólstæðinga sinna í fyrsta sæti og kappkosta að veita áfram bestu mögulegu þjónustu á krefjandi tímum heimsfaraldurs.


Tengdar fréttir

Kæra starfshætti SÁÁ til héraðs­sak­sóknara

Embætti héraðssaksóknara hefur borist kæra frá eftirlitsdeild Sjúkratrygginga Íslands vegna máls sem varðar starfshætti SÁÁ. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við Vísi en kæran barst embættinu í seinustu viku.

„Starfsfólk SÁÁ er alveg miður sín“

Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, telur misskilnings gæta hjá eftirlitsdeild Sjúkratrygginga Íslands sem hefur krafið SÁÁ um 175 milljónir króna vegna tilhæfulausra reikninga.

Hafna at­huga­semdum Sjúkra­trygginga og 175 milljóna kröfu

Formaður SÁÁ hafnar öllum athugasemdum sem eftirlitsdeild Sjúkratrygginga Íslands gerir við starfshætti samtakanna, sumar mjög alvarlegar. Sjúkratryggingar krefja SÁÁ um tæpar 175 milljónir í endurgreiðslu, meðal annars vegna reikninga fyrir ráðgjafaviðtöl sem eftirlitsnefnd telur tilhæfulausa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×