Skíðamennskan er fjárfesting í vellíðan GG Sport 13. janúar 2022 15:59 Gönguskíði njóta vaxandi vinsælda. Íslendingar flykkjast út á skíði á nýju ári.
Leifur Dam Leifsson, annar eigenda GG Sport segir Íslendinga meðvitaða um heilsusamlegt líferni og hreyfingu. Skíðaiðkun sé mjög vinsælt áramótaheit. „Við höfum tekið eftir því að fólk ætlar að setja sér markmið og þá er aldrei hægt að tapa. Um leið og viðkomandi hefur sett sér markmið er hálfur sigurinn unninn því ávinningurinn vinnst á leiðinni. Fólk strengir áramótaheit heilt yfir í öllum flokkum og þá sérstaklega í gönguskíðum,“ segir Leifur, skíðaiðkun sé frábær útivist bæði fyrir líkama og sál. „Við starfrækjum ókeypis skíðakennslu fyrir krakka og byrjendur hverja helgi í Bláfjöllum, þegar brekkan er opin," segir Leifur Dam Leifsson, annar eigenda GG Sport.Vilhelm „Ég held að á tímum sem þessum hefur aldrei, og ég ítreka, aldrei verið mikilvægara að huga að sjálfum sér hvort sem það er varðandi almenna útivist eða það að stunda skíði. Skíðamennska er bara ein leið til að fjárfesta í vellíðan og ekki síst hugarró,“ segir Leifur. „Skíðin hafa þann eiginleika að á þeim getur þú verið einn eða í hópi. Ég t.d reyni að draga konuna og strákinn með mér við hvert tækifæri annaðhvort á skíði eða á gönguskíði. Við gerum þetta oftast saman og ég held að það skipti líka máli. Einnig höfum við verið að taka á móti hópum sem hafa óskað eftir því að fá kynningu á skíðunum. Þá mæta hóparnir hingað í verslunina til okkar og fá fræðslu um skíðin og við getum þá auðveldlega svarað þeim spurningum sem brenna á fólki. Þetta hefur gefist vel,“ segir Leifur, það fjölgi hratt í þeim hópi sem stundar skíði og gönguskíðin njóti mestra vinsælda. „Í svigskíðum og fjallaskíðum erum við að fá fólk á öllum getustigum. Flestir sem eru að fjárfesta í gönguskíðum eru byrjendur enda vex það sport einna mest. Við búum við mikla vetrarsportsvakningu og nú eru t.d. ferðagönguskíðin að verða æ vinsælli. Svo erum við með gönguskíði sem eru hugsuð í braut en er einnig hægt að nota sem ferðaskíði, þ.e. ganga utan brautar í villtri vetrarnáttúrunni… það er nú eitthvað!“ segir Leifur. Fjallaskíðunum og utanbrautarskíðum fylgir mikið frelsi en skynsamlegt er fyrir byrjendur í skíðaiðkun að fá leiðsögn. „Ég myndi mæla með leiðsögn og ef hún er ekki í boði að fara þá jafnvel á námskeið. Fyrir svigskíðin og brettin er boðið upp á fjölda námskeiða til dæmis uppi í Bláfjöllum fyrir okkur sem búum á höfuðborgarsvæðinu. Það er reyndar gaman að segja frá því að við starfrækjum ókeypis skíðakennslu fyrir krakka og byrjendur hverja helgi í Bláfjöllum, þegar brekkan er opin, þið sjáið fánann okkar við töfrateppið. Svo er skíðagöngufélagið Ullur að gera góða hluti fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á gönguskíðum. Ég var til dæmis alveg eins og belja á svelli fyrst þegar ég fór á gönguskíði en eftir smá leiðsögn þá fór þetta allt að koma. Þá er hörkustarf um allt land,“ segir Leifur. „Nýjasta viðbótin okkar er ofurtöffarabrandið Black Crows sem er eitt vinsælasta merkið í fjallaskíðunum." Glæsileg skíðadeild var opnuð í GG Sport í nóvember síðastliðnum og þar segir Leifur hægt að finna skíðabúnað við allra hæfi. Starfsfólk skíðadeildarinnar búi yfir mikilli þekkingu og veiti faglega ráðgjöf. Viðskiptavinir hafi tekið nýju deildinni fagnandi. Hér má fletta í gegnum úrvalið í nýju deildinni: VilhelmVilhelmVilhelmVilhelmVilhelmVilhelm „Viðtökurnar hafa verið hreint út sagt frábærar. Það er eiginlega magnað en við höfum náð að byggja upp eina öflugustu skíðadeild landsins á skömmum tíma. Það er klárt mál að kúnnahópurinn okkar var alltaf til staðar, kúnnarnir okkar treysta því að við gerum vel og veljum rétt fyrir hvern og einn. Við erum með öflug merki á bakvið okkur eins og K2 svigskíði, fjallaskíði og bretti, Madshus gönguskíði og nýjasta viðbótin okkar er ofurtöffarabrandið Black Crows sem er eitt vinsælasta merkið í fjallaskíðunum. Við opnuðum einnig nýlega skíðadeild í samvinnu við Ellingsen úti á Granda og við erum í samstarfi við Útisport á Akureyri og Ísfell verslun á Húsavík með gönguskíði og svigskíði.“
Heilsa Mest lesið Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Sjá meira