Sport

Birkir og félagar komnir áfram í 16-liða úrslit

Atli Arason skrifar
Birkir Bjarnason í treyju Adana Demirspor
Birkir Bjarnason í treyju Adana Demirspor /Adana Demirspor

Birkir Bjarnason og félagar í Adana Demirspor eru komnir áfram í 16-liða úrslit  tyrkneska bikarsins eftir 3-2 sigur á Ankaraspor í fimmtu umferð keppninnar.

Birkir Bjarnason og Mario Balotelli voru hvorugir í leikmannahóp Demirspor í þessum leik en báðir spiluðu í 1-1 jafntefli við Götztepe í tyrknesku deildinni síðastliðin sunnudag.

Adana Demirspor byrjaði leikinn betur en strax á 11. mínútu kemur nígerski miðjumaðurinn heimamönnum yfir. Adana var þó ekki lengi í paradís þar sem Ankaraspor jafnar leikinn strax aftur rúmum tveimur mínútum síðar og var þar að verki tyrkneski vængmaðurinn Sahin Fistikci.

Þegar hálftími var liðin af leiknum kom varnarmaðurinn ungi, Recep Yemisci, Ankaraspor yfir í leiknum og gestirnir fóru með eins mark forystu inn í hálfleik eftir að hafa snúið leiknum sér í vil.

Frá upphafi síðari hálfleiks var leikurinn nánast einstefna að marki Ankaraspor en markvörður þeirra, Metin Erol, hélt þeim á köflum inn í leiknum með öflugum markvörslum. Eitthvað var þó að gefa eftir og það gerðist á 67. mínútu þegar Samey Akaydin skallar boltann í net Ankaraspor eftir hornspyrnu og allt var jafnt á ný.

Bæði lið sóttu til skiptis það sem eftir lifði leiks en á 85. mínútu fékk Sahin Fisticki, leikmaður Ankaraspor, tækifæri til að skora sitt annað mark í leiknum og tryggja Ankaraspor sigurinn þegar hann nær að spóla sig í gegnum vörn Demirspor, inn í vítateig þeirra og kemst nánast alveg að markteignum áður en hann reynir skotið sem Vedat Karkus, markvörður Demirspor, varði vel.

Þetta klúður reyndist Ankaraspor dýrkeypt þar sem Demirspor skoraði sigurmarkið stuttu seinna, eða á 89. mínútu, og var þar að verki Metehan Mimaroglu með þéttingsföstu skoti inn í vítateig gestanna, lokatölur 3-2 fyrir Birki og félaga í Adana Deminspor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×