Fótbolti

Rúnar Alex fór meiddur af velli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rúnar Alex fór meiddur af velli í kvöld.
Rúnar Alex fór meiddur af velli í kvöld. Plumb Images/Getty Images

Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson fór meiddur af velli í kvöld er lið hans Leuven tapaði 4-1 fyrir Club Brugge í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Rúnar Alex er á láni hjá Leuven frá Arsenal og var loks búinn að vinna sér inn sæti í liðinu. Var þetta fjórði deildarleikur hans fyrir liði en hann hefur einnig leikið tvo bikarleiki.

Undir lok fyrri hálfleiks í kvöld lenti Rúnar Alex í samstuði við Noa Lang og gat ekki haldið áfram.

Rafael Romo kom í markið í hans stað og lék síðari hálfleikinn er Leuven fékk á sig þrjú mörk til viðbótar, lokatölur 4-1.

Leuven er sem stendur í 15. sæti deildarinnar með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×