Lífið

Thomp­son sagður hafa eignast barn í lausa­leik

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Það hefur ýmislegt gengið á hjá þeim Tristan Thompson og Khloé Kardashian.
Það hefur ýmislegt gengið á hjá þeim Tristan Thompson og Khloé Kardashian. Getty/George Pimentel/Allen Berezovsky

Hin 31 árs gamla Maralee Nichols eignaðist barn á dögunum og segir hún körfuboltaleikmanninn Tristan Thompson vera faðir barnsins. Thompson hefur viðurkennt að hann hafi sofið hjá Nichols en hann var aftur á móti í sambandi með Khloé Kardashian þegar barnið kom undir.

Tristan Thompson og Khloé hafa átt í stormasömu sambandi frá árinu 2016 en þau eignuðust dótturina True árið 2018.

„Við vitum að hann hélt framhjá Khloé þegar hún var á steypinum, alveg að fara eiga. Hann kyssti síðan bestu vinkonu litlu systur Khloé, hana Jordyn Woods. Svo komu fréttir í júní að hann hefði farið með tveimur stelpum inn á hótelherbergi og þau hættu þau saman í kjölfarið af því, í fimmta skiptið.

En núna á fimmtudaginn komu fréttir af því að maðurinn eigi barn með einhverjum einkaþjálfara sem enginn veit hver er,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir sem fer yfir allt það helsta frá Hollywood í Brennslutei vikunnar.

„Þetta er raunverulegt dæmi“

Slúðurmiðlar vestanhafs hafa greint frá því að barnið hafi komið í heiminn þann 2. desember síðastliðinn. Þá hafa slúðurmiðlarnir einnig grafið upp raunverulegt dómsmál sem er í gangi vegna þessa.

„Ég veit hann hefur áður verið sakaður um að gera einhverjar óléttar en þetta er raunverulegt dæmi. Hún segir að þau hafi verið búin að vera sofa saman í marga mánuði en þetta tiltekna skipti sem hún varð ólétt gerist í mars.“

Á þeim tímapunkti var Thompson hins vegar í föstu sambandi með barnsmóður sinni Khloé. Birta bendir á að það megi sjá á Keeping Up With The Kardashians þáttum frá þessum tíma og afmæliskveðju sem Khloé skrifaði til Thompson í þessum sama mánuði.

Í afmæliskveðjunni segir Khloé að þau sem komast í gegnum erfiðleika saman, þeim er ætlað að vera saman. Þar má ætla að hún sé að vísa til fyrri erfiðleika úr þeirra sambandi en vissi þá ekki hvað koma skyldi.

„Þarna eru þau bara full-on svo hamingjusöm og þarna er hann bara að sofa hjá annarri.“

Í raunveruleikaþætti Kardashian-fjölskyldunnar má sjá það að á þessum tíma voru þau Tristan og Khloé að reyna að eignast barn saman og því þvertekur Birta fyrir það að þau hafi verið í opnu sambandi.

„Það er ekki ennþá búið að staðfesta það að hann eigi barnið. En það má sjá það í þessum gögnum að hann viðurkennir að þau hafi sofið saman. Þannig hann er búinn að viðurkenna upp á sig framhjáhald en segir að hann þurfi að fá DNA test til þess að staðfesta þetta.“

Í þættinum segir Birta einnig frá því að búið sé að blása af hnefaleikabardaga YouTube-stjörnunnar Jake Paul og fyrrverandi Love Island-keppandans Tommy Fury sem stóð til að yrði þann 18. desember, sökum beinbrots Fury. Þess í stað muni bardagakappinn Tyron Woodly slást við Paul.

Þá segir ræðir Birta einnig nýjustu fréttir af Megan Fox og Machine Gun Kelly og þeim Kim Kardashian og Pete Davidson.

Hér að neðan má hlusta á Brennslute vikunnar í heild sinni.


Tengdar fréttir

Yeezy-klædd Kim Kar­dashian leiðir nýja kærastann

Síðustu vikur hafa allra augu verið á raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian og grínistanum Pete Davidson sem eru sögð eiga í ástarsambandi. Birta Líf Ólafsdóttir fór yfir málið í Brennslutei vikunnar.

Kanye West orðaður við tuttugu og tveggja ára gamla fyrir­sætu

Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir fer yfir allt það helsta í Hollywood í Brennslutei vikunnar alla þriðjudagsmorgna á FM 957. Í morgun fór Birta yfir harmleikinn sem átti sér stað á Astroworld-tónlistarhátíðinni um helgina. Þá var einnig rætt um ný ástarsambönd þeirra Kim Kardashian og Kanye West sem virðast bæði vera að horfa fram á veginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.