Innlent

Fær engar bætur eftir að fimm lítrar af ó­­lífu­­olíu skemmdu flug­far­angurinn

Atli Ísleifsson skrifar
Flugfarþeginn flutti fimm lítra af olífuolíu í töskunni.
Flugfarþeginn flutti fimm lítra af olífuolíu í töskunni. Getty

Samgöngustofa hefur hafnað kröfum manns um skaðabætur úr hendi flugfélagsins Wizz Air vegna tjóns sem varð á innrituðum farangri hans í flugi eftir að ílát, sem geymdi fimm lítra af ólífuolíu, sprakk og olli tjóni á fatnaði, raftækjum og fleiru í töskunni.

Farþeginn var á leið frá Katowice í Póllandi til Keflavíkur í ágúst 2020 þegar atvikið varð. Tilkynnti hann Wizz Air og atvikið tveimur dögum síðar.

Kvartandi sendi með kvörtuninni myndir af þeim verðmætum sem urðu fyrir tjóni í flutninginum. Fór hann fram á skaðabætur vegna tjóns á farangri á grundvelli laga um loftferðir, samanber reglugerð um skaðabætur og aðstoð til handa farþegum í flugi sem neitað er um far og þegar flugi er aflýst, seinkað eða flýtt eða vegna tapaðs farangurs eða tjóns á honum.

Engin ábyrgð ef um vökva er að ræða

Í svari Wizz Air til Samgöngustofu var vísað í skilmála þar sem tekið er fram að flugfélagið beri ekki ábyrgð á skemmdum sem kunni að verða á farangri ef hann inniheldur „vökva“. Ekki bárust svo frekari svör frá kvartanda.

Mat Samgöngustofu er að það í þeirri ráðstöfun að pakka fimm lítrum af olíu í innritaðan farangur „hafi verið fólgin talsverð áhætta þannig að umrætt tjón megi rekja til ástands farangurs“, samanber 104. grein loftferðalaga.

Sjálfur valdur

„Þess til viðbótar ber að geta þess að í 107. gr. loftferðalaga nr. 60/1998 er heimild til að lækka skaðabætur eða fella þær niður ef sá sem fyrir tjóninu varð hafi sjálfur verið valdur eða samvaldur af því.

Það er því einnig mat SGS að kvartandi verði að bera ábyrgð á tjóni sínu sjálfur þar sem háttsemi hans að pakka umræddri olíu hafi valdið tjóninu.

Kröfu kvartenda um skaðabætur úr hendi WA vegna tjóns á innrituðum farangri kvartanda er því hafnað,“ segir í ákvörðun Samgöngustofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×