Musk segir SpaceX í krísu og gjaldþrot mögulegt Samúel Karl Ólason skrifar 30. nóvember 2021 23:01 Elon Musk, stofnandi of forstjóri SpaceX. AP/Susan Walsh Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri SpaceX, segir fyrirtækið í krísu vegna hægrar framleiðslu á eldflaugarhreyflum og að gjaldþrot sé mögulegt. Fyrirtækið þurfi nauðsynlega að auka framleiðslu.
Í tölvupósti sem Musk sendi nýverið á starfsmenn SpaceX sagði hann framleiðsluvanda varðandi Raptor-eldflaugarhreyflana gífurlega alvarlegan fyrir fyrirtækið. Raptor-hreyflarnir eiga að knýja Starship-geimskipið sem starfsmenn SpaceX hafa verið að þróa í Texas. Geimskipið á að flytja menn og birgðir til tunglsins og lengra út í sólkerfið. Starship á einnig að nota til að koma annarrar kynslóðar Starlink-netgervihnöttum á braut um jörðu, þar sem Falcon-eldflaugarnar duga ekki til þess. Vegna þess að nýju gervihnettirnir eru mun stærri en þeir eldri. Space Explored kom höndum yfir póst Musks en í honum sagði hann að vandamálið væri mun stærra en það var fyrir nokkrum vikum. Póstinn sendi hann fyrir þakkagjörðarhátíðina um síðustu helgi og biðlaði til starfsmanna sinna um að hætta við frí sín og mæta til vinnu. Það væri nauðsynlegt vegna þessa hörmulega ástands. Falcon 9 eldflaug skotið á loft frá Flórída fyrr í nóvember. Um borð voru Starlink-gervihnettir.SpaceX Forsvarsmenn SpaceX vilja framleiða tvo Raptor-hreyfla á viku. Það sé nauðsynlegt svo hægt sé að fljúga nægilega mörgum Starship-geimförum þegar þróun þeirra lýkur. Sérstaklega varðandi Starlink-gervihnettina en Musk sagði aðra kynslóð þeirra mun hagkvæmari fjárhagslega séð fyrir fyrirtækið. Space Explorer segir að um tíma hafi SpaceX verið að tapa nærri þúsund dölum á hverjum notanda Starlink-gervihnattanna. Tekist hafi að draga úr kostnaði en þrátt fyrir það sé kostnaðurinn við uppsetningu gervihnattanna gífurlega mikill og mun það reynast baggi á rekstri SpaceX. Í lok tölvupóstsins sagði Musk að fyrirtækið standi frammi fyrir raunverulegri hættu á gjaldþroti ef ekki tekst að skjóta minnst einu Starship-geimfari út í geim á tveggja vikna fresti á næsta ári. Musk hefur byggt SpaceX upp á grunni þess að með endurnýtanlegum eldflaugum er hægt að draga verulega úr kostnaði við geimskot. Fyrirtækið var nýverið metið á hundrað milljarða dala og greiningaraðilar telja mögulegt að SpaceX hafi burði til að gera Musk að fyrsta billjónamæringi heimsins, í dölum talið. Sjá einnig: Ekki Tesla heldur SpaceX sem muni gera Musk að billjónamæringi Starship á að vera grunnurinn að framtíð SpaceX. Með því að þróa fullkomlega endurnýtanlega eldflaug og geimfar gæti fyrirtækið dregið enn frekar úr kostnaði við geimskot og framkvæmt þau mun oftar en samkeppnisaðilar. Musk hefur áður sagt að Starship eigi í raun að vera eins og flugvélar. Hægt verði að stíga um borð í geimfar hér á Íslandi og lenda svo í Japan skömmu seinna. Þar eigi einungis að þurfa að dæla eldsneyti á geimfarið og fljúga því eitthvað annað. Til stendur að skjóta fyrsta Starship-geimfarinu út í geim á næsta ári. Sú frumgerð kallast SN20 og er ekki búist við því að hún komist óskemmd í gegnum tilraunaskotið. Musk sagði á Twitter í kvöld að gjaldþrot væri „ólíklegt, en ekki ómögulegt.“ The magnitude of the Starship program is not widely appreciated. It is designed to extend life to Mars (and the moon), which requires ~1000 times more payload to orbit than all current Earth rockets combined.— Elon Musk (@elonmusk) November 30, 2021
Bandaríkin SpaceX Geimurinn Tækni Artemis-áætlunin Tunglið Mars Tengdar fréttir Selur hlutabréf til að borga tvö þúsund milljarða í skatta Elon Musk, auðugasti maður heims, spurði nýverið tugi milljóna fylgjendur sína á Twitter að því hvort hann ætti að selja tíu prósent hlutabréfa sinna í Tesla, bílafyrirtækinu sem hann stofnaði. Musk sagðist ætla að una ákvörðun Twitter, en 58 prósent þeirra sem tóku þátt sögðu honum að selja. 8. nóvember 2021 14:59 Kanna leiðir til að draga úr áhrifum geimferða Fjórum geimförum verður skotið út í geim á sunnudagsmorgun. Þau munu verja næstu mánuðum við störf og rannsóknir í Alþjóðlegu geimstöðinni. Geimförunum verður skotið út í geim um borð í Crew Dragon geimfari SpaceX. 27. október 2021 13:55 NASA horfir lengra út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. 28. september 2021 13:07 Hafa ekki skotið geimfari hærra en gert var í nótt Starfsmenn SpaceX skutu í nótt fjórum geimförum í um 585 kílómetra hæð yfir jörðu. Þar munu þau verja þremur dögum á braut um jörðina. 16. september 2021 10:54 Ruslahaugur á sporbraut: Hættan á stórslysi eykst sífellt Spútnik, fyrsta gervihnetti jarðarbúa, var skotið á loft frá Sovétríkjunum árið 1957. Síðan þá hefur þúsundum gervihnatta og annarra muna verið skotið á braut um jörðu. Mikil óreiða ríkir á sporbraut og gífurlegt magn svokallaðs geimrusls hefur myndast þar. 10. maí 2021 12:47 SpaceX lenti nýjustu frumgerðinni Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX skutu í kvöld enn einni frumgerð geimfarsins Starship á loft frá Texas. Þá tókst þeim að lenda þessari stærðarinnar frumgerð í heilu lagi. Fyrirtækið gerði nýverið samning við Geimvísindastofnun Bandaríkjanna um að flytja geimfara til tunglsins með Starship. 5. maí 2021 23:04 Margir áfangar í geimskoti SpaceX og NASA Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX munu á fimmtudaginn skjóta fjórum geimförum af stað til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Verður það í fyrsta sinn sem eldflaug og geimfar eru endurnýtt til að koma geimförum út í geim. 20. apríl 2021 13:32 NASA semur við SpaceX um að lenda geimförum aftur á tunglinu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur samið við fyrirtækið SpaceX um þróun á lendingarfari sem notað verður til að lenda mönnum á tunglinu. Starfsmenn fyrirtækisins, sem er í eigu auðjöfursins Elon Musk, munu þróa sérstaka tegund Starship geimskipsins og nota það til að lenda tveimur bandarískum geimförum á tunglinu á næstu árum. 17. apríl 2021 10:25 Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira
Selur hlutabréf til að borga tvö þúsund milljarða í skatta Elon Musk, auðugasti maður heims, spurði nýverið tugi milljóna fylgjendur sína á Twitter að því hvort hann ætti að selja tíu prósent hlutabréfa sinna í Tesla, bílafyrirtækinu sem hann stofnaði. Musk sagðist ætla að una ákvörðun Twitter, en 58 prósent þeirra sem tóku þátt sögðu honum að selja. 8. nóvember 2021 14:59
Kanna leiðir til að draga úr áhrifum geimferða Fjórum geimförum verður skotið út í geim á sunnudagsmorgun. Þau munu verja næstu mánuðum við störf og rannsóknir í Alþjóðlegu geimstöðinni. Geimförunum verður skotið út í geim um borð í Crew Dragon geimfari SpaceX. 27. október 2021 13:55
NASA horfir lengra út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. 28. september 2021 13:07
Hafa ekki skotið geimfari hærra en gert var í nótt Starfsmenn SpaceX skutu í nótt fjórum geimförum í um 585 kílómetra hæð yfir jörðu. Þar munu þau verja þremur dögum á braut um jörðina. 16. september 2021 10:54
Ruslahaugur á sporbraut: Hættan á stórslysi eykst sífellt Spútnik, fyrsta gervihnetti jarðarbúa, var skotið á loft frá Sovétríkjunum árið 1957. Síðan þá hefur þúsundum gervihnatta og annarra muna verið skotið á braut um jörðu. Mikil óreiða ríkir á sporbraut og gífurlegt magn svokallaðs geimrusls hefur myndast þar. 10. maí 2021 12:47
SpaceX lenti nýjustu frumgerðinni Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX skutu í kvöld enn einni frumgerð geimfarsins Starship á loft frá Texas. Þá tókst þeim að lenda þessari stærðarinnar frumgerð í heilu lagi. Fyrirtækið gerði nýverið samning við Geimvísindastofnun Bandaríkjanna um að flytja geimfara til tunglsins með Starship. 5. maí 2021 23:04
Margir áfangar í geimskoti SpaceX og NASA Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX munu á fimmtudaginn skjóta fjórum geimförum af stað til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Verður það í fyrsta sinn sem eldflaug og geimfar eru endurnýtt til að koma geimförum út í geim. 20. apríl 2021 13:32
NASA semur við SpaceX um að lenda geimförum aftur á tunglinu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur samið við fyrirtækið SpaceX um þróun á lendingarfari sem notað verður til að lenda mönnum á tunglinu. Starfsmenn fyrirtækisins, sem er í eigu auðjöfursins Elon Musk, munu þróa sérstaka tegund Starship geimskipsins og nota það til að lenda tveimur bandarískum geimförum á tunglinu á næstu árum. 17. apríl 2021 10:25