Innlent

Hart tekist á um bíla­um­ferð um nýja mið­bæ Sel­foss

Árni Sæberg skrifar
Sumir íbúar Selfoss vilja gera bíla brottræka úr nýja miðbænum.
Sumir íbúar Selfoss vilja gera bíla brottræka úr nýja miðbænum. Stöð 2/Arnar

Íbúar Selfoss virðast þurfa að búa sig undir harðan ágreining um álitamál sem íbúar Reykjavíkur hafa deilt um í áraraðir, á að leyfa bílaumferð í miðbænum?

Miklar umræður hafa sprottið upp á Facebookhópi Selfyssinga um bílaumferð um nýja miðbæinn. Sumir telja hana skemma ásýnd miðbæjarins en aðrir vilja vernda aðgengi að verslunum.

Umræðurnar hófust með færslu í Facebookhópinn Íbúar á Selfossi sem hefst með orðunum „Er þetta einhver súr brandari hjá bæjaryfirvöldum? Að vera með bílaumferð gegnum nýja miðbæinn?“

Með færslunni fylgir mynd sem sýnir bíla lagða eftir endilangri aðalgötu nýja miðbæjarins.

Flestir taka undir orð færsluhöfundar og sumir segja bílaumferð jafnvel skemma alla stemningu. Stemningin í miðbænum hefur alla jafna verið gríðarleg síðan hann opnaði í sumar.

Hvað með aðgengið?

Aðrir hafa minni áhyggjur af umferð um miðbæinn og fagna henni jafnvel. Einn íbúi bendir réttilega á að mikilvægt sé að jafnt aðgengi allra sé tryggt.

Einn íbúi gengur lengra og segir það ótrúlegan hroka að ætla að útiloka stóran hóp íbúa frá miðbænum með því að banna umferð bíla.

Þeim athugasemdum er svarað um hæl og bent á að næg bílastæði séu í næsta nágrenni miðbæjarins. Þá er einnig stungið upp á málamyndalausn þar sem bílastæðum hreyfihamlaða væri komið fyrir inni í bænum. Mikil vöntun virðist vera á slíkum stæðum sem stendur.

Óttast dauða verslunar

Þá hafa aðrir íbúar áhyggjur af rekstrargrundvelli fyrirtækja í nýja, einn spyr hvort drepa eigi alla verlsun þar og bendir á að ekki sé um Reykjavík að ræða.

Annar segir það ósanngjarnt gagnvart fyrirtækjum í nágrenni miðbæjarins að ætlast til þess að bílastæða þeirra verði nýtt fyrir gesti miðbæjarins.

Þegar fréttin er skrifuð hafa 57 ummæli verið rituð við færsluna og því ljóst að um mikið hitamál er að ræða. Óhætt er að fullyrða að ekki sjái fyrir endalok umræða um málefnið, ef tekið er mið af deilum Reykvíkinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×