Skoðun

Heims­meistarar í hring­rásar­hugsun og sjálf­bærni?

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar

Í gegnum tíðina höfum við ótal dæmi um hvernig við höfum staðið okkur verulega vel í hringrásarhugsun og sjálfbærni. Við þurftum að finna aðferðir við að geyma matvæli til að deyja ekki úr hungriekki bara alveg óvart heldur meira af algjörri nauðsyn og mikilli neyð.

Frá árinu 872 +/- 2 ár til 1920 var Ísland nánast fullkomið hringrásarhagkerfi. Við lærðum að byggja hús með því að nýta efni og afganga því það var hvorki þekking eða aðgengi að öðru byggingaefni. Aftur, neyð en á sama tíma gríðarlega mikil þekking og nýting á hráefni sem hægt var að nálgast í nágrenninu.

Ég er ekki að mæla með því að við færum okkur aftur í torfkofana eða að við förum að súrsa mat, hinsvegar ættum við að hugsa okkur verulega um áður en það verður aftur neyðin sem ýtir okkur í nýjar áttir. Við höfum ennþá val og það val getur verið verulega skemmtilegt og uppbyggjandi. Ekkert kvíðavaldandi við það að fá tækifæri til að byggja upp bjarta og skapandi framtíð.

Síðustu 20-30 ár hafa einkennst af velmegun og mikilli neyslu. Afleiðingarnar, ef við girðum okkur ekki í brók fljótlega, gæt orðið dálítið mikil og löng þynnka. Við getum heldur ekki bara farið í að endurhanna alla hluti sem hafa verið hannaðir hingað til, við þurfum að hanna hluti frá byrjun með það fyrir augum að það sé hringrás fyrir þessa ákveðnu hluti og raunveruleg not og þörf.

Munum að náttúran gerir ekki mistök, aldrei. Maðurinn, ég og þú, gerum mistök. Nátturan hinsvegar mun refsa okkur með sínum aðferðum hvort sem við kjósum að líta á núverndi heimsfaraldur, flóð og/eða hverskonar náttúruhamfarir sem hluta af þeirri refsingu. Það þýðir samt ekki að við séum vond eða illa meinandi. Við erum bara mannleg, það góða við það hinsvegar er að við getum lært af okkar mistökum og bætt um betur.

Það er ekki nóg að stjórnvöld geri þetta, það er ekki nóg að ein og ein eða stærsta atvinnugreinin geri þetta, það er ekki nóg að allir einstaklingar flokki ruslið sitt, það er ekki nóg að ungt fólk hafi metnað. Við þurfum að gera þetta öll, saman á sama tíma. (Hér gæti ég verið með stórkemmtilega samlíkingu við smalamennsku en ég bíð aðeins með það)

Hættum að skammast og koma inn samviskubiti yfir því hvernig komið er, það gerir ekkert annað en að letja fólk til alvöru verka. Verum stolt af því að vinna að þessu saman, látum okkur hlakka til að uppskera árangurinn, nýtum samtakamáttinn og finnum gleðina í að eiga frábær lífsgæði saman á þessum dásamlega eyjaklumpi sem við köllum heima. Verum öðrum síðan fyrirmynd og bætum heiminn, eitt skref, einn bita í einu.

Höfum hugrekki, núna.

Höfundur er framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×